Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Lýsir harðræði á Bjargi: „Auður Eir sagði að það ætti að ala okkur upp í þrælsótta“

Sonja Ingva­dóttir var ein þeirra stúlkna sem vistaðar voru á stúlkna­heimilinu Bjargi á árunum 1965 til 1967. Hún var 14 ára gömul þegar hún var send á heimilið og er meðal þeirra sem hefur sakað forsvars­menn og starfs­konur heimilisins um harðræði og ofbeldi.

Sonja var ein þeirra sem stóð að kæru á hendur Bjargi árið 1967. Á endanum var málið láta niður falla því ekki þóttu nægar sannanir fyrir hendi til þess að höfða opinbert mál. Bjarg varð seinna eitt þeirra vist­heimila sem ríkið greiddi sanngirnis­bætur vegna og þótti sennilegt að stúlkurnar sem þar voru vistaðar hefðu þurft að þola óforsvaranlega meðferð þeirra sem þar stjórnuðu og störfuðu.

Sonja og fleiri konur sem dvöldu á Bjargi hafa borið séra Auði Eiri Vilhjálms­dóttur þungum sökum, en hún átti frumkvæði að opnun Bjargs og starfaði þar þann tíma sem heimilið var opið. Hún er meðal annars sökuð um andlegt ofbeldi og að hafa vitað upp á hár hvers konar meðferð viðgekkst á Bjargi. Hún er sömuleiðis sögð hafa fyrir­skipað einangrun og harkalega meðferð stúlknanna á Upptöku­heimilinu í Kópavogi, þar sem þær hafi verið vistaðar fyrir veru sína á Bjargi og sendar á ef þær óhlýðnuðust.

Eftir­farandi er brot úr frásögn Sonju, sem segir sögu sína opinber­lega í fyrsta sinn í nýjasta tímariti Mannlífs.

Séra Auður Eir á Bjargi

Séra Auður Eir Vilhjálms­dóttir starfaði á Bjargi allan starfs­tíma heimilisins og var nefndar­maður í stjórn þess. Hún var fyrsta konan á Íslandi sem hlaut vígslu til prests árið 1974, en samhliða námi sínu í guðfræði starfaði hún sem lögreglu­kona og gegndi því starfi einnig þegar hún vann á Bjargi.

„Auður Eir var ekki þarna á hverjum degi, en kom eins og Grýla þegar við vorum að gera eitthvað af okkur. Hún var notuð sem Grýla. Þær sögðu okkur að ef við höguðum okkur ekki vel, myndi Auður Eir koma,“ segir Sonja. Hún lýsir því að þrátt fyrir að Anna Ona hafi verið forstöðu­kona, hafi allir á Bjargi skynjað að það væri Auður sem hefði völdin. „Capo dei capi,“ segir Sonja. Það hugtak er almennt notað um glæpa­foringja.

„Auður Eir sagði að það ætti að ala okkur upp í þrælsótta. Þetta er svo ókristið, óheiðarlegt og viðbjóðslegt. Og þarna, á Bjargi, ætlaði Auður Eir að koma sér upp. Þau fengu nátt­úrlega peninga með okkur. Við vorum bara gullgæsir.“

„Auður Eir sagði að það ætti að ala okkur upp í þrælsótta“

Í viðtali við DV árið 2007 sagði Gísli Gunnarsson, sem rann­sakaði mál Bjargs­stúlkna og hjálpaði þeim við að leggja fram kæru og leita réttar síns, að forstöðu­kona Upptöku­heimilisins í Kópavogi hafi tjáð honum að lögreglu­konurnar Auður Eir og Guðlaug Sverris­dóttir hefðu viljað hafa innilokun stúlknanna – þegar þær komu þangað í upphafi – mun strangari en hún hefði sjálf óskað. Þar má til að mynda vísa til vistunar Sonju á Upptöku­heimilinu fyrstu vikuna.

Forstöðu­konan, Ólöf Þorsteins­dóttir, kom til viðtals við vistheimila­nefnd þegar nokkur vist­heimili voru rannsökuð með tilliti til þess hvort þar hefði harðræði verið beitt. Hún gaf einnig skýrslu hjá lögreglu 25. október árið 1967, þegar Bjarg var rannsakað í kjölfar kærunnar. Í vitnis­burði sínum sagði hún meðal annars að vist­stúlkur af Bjargi hefðu stundum komið til dvalar á Upptöku­heimilinu. Í öllum tilfellum hefði lögreglu­kona komið með þær þangað og að hún hefði fengið þau fyrirmæli frá lögreglu­konunni að stúlkurnar skyldu sæta algerri einangrun meðan á dvöl þeirra stæði. Henni hafi þótt einangrun og innilokun stúlknanna harðneskjuleg og að henni hefði liðið illa vegna þessara ströngu fyrir­skipana. Hún hefði talið að inni­lokunin hefði ekki góð áhrif á heilsufar stúlknanna og þess vegna hefði hún ekki alltaf farið eftir þeim fyrir­mælum. Henni þótti stúlkurnar frá Bjargi ekki verðskulda þessa meðferð.

Fyrr­verandi starfs­kona á Upptöku­heimilinu í Kópavogi sagði í viðtali við vistheimila­nefnd að lögreglu­kona, sem einnig var nefndar­maður í stjórn Bjargs, hefði gjarnan komið með stúlkur á Upptöku­heimilið. Hún hafi fyrir­skipað að þær skyldu sæta einangrun. Starfs­konan sagði að henni hefði þótt sú ráðstöfun harkaleg.

Hér má lesa sögu Sonju í heild sinni í nýjasta tímariti Mannlífs. Einnig má nálgast ókeypis eintak í Hagkaup, Bónus og á N1.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Honum er lýst sem ástsælum samstarfsmanni og kærleiksríkum fjölskyldumanni
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Samanburðurinn á tekjuskiptingu byggist á Gini-stuðlinum

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram