Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Hanna Katrín grunuð um peningaþvott í Svíþjóð: „Hún hrökk við og brosið hvarf af andlitinu“

Hanna Katrín Friðriksson matvælaráðherra
Hanna Katrín Frið­riks­son mat­væla­ráð­herra

Hanna Katrín Friðriksson, þingkona Viðreisnar, segir á Facebook farir sínar ekki sléttar af flugvelli í Stokk­hólmi. Þar hugðist hún eiga í gjaldeyris­skiptum en það gekk ekki betur en svo að starfs­fólk var farið að gruna hana um peninga­þvott. Yfirmaður leyfði henni, þó með semingi, að kaupa 200 evrur á um 30 þúsund krónur. Hann sagði að næst yrði hún líklega ekki svo heppin.

„Smásaga um aðgerðir gegn peninga­þvætti og annarri spillingu. Mér hálf­leiddist þarna á flug­vellinum í Stokk­hólmi enda 4 tíma bið í næstu vél á fund forsætis­nefndar Norður­landaráðs á Álands­eyjum. Þegar ég gekk fram á bás þar sem boðið var upp á gjaldeyris­skipti ákvað ég að slá til og kaupa 200 evrur (ca 32.000 ísl.kr.) Allt gekk vel í upphafi og ég svaraði samvisku­samlega hverri spurningunni á fætur annarri, enda hver vill ekki aðstoða í barátt­unni við peninga­þvætti og annað slíkt. Þar til kom að spurninginni, við hvað starfarðu?,“ lýsir Hanna Katrín.

Þá fyrst fóru Svíar að gruna hana um græsku, enda algeng í hennar stétt. „Ég sver það, mér sýndust koma rauðar glæringar úr tölvu stúlkunnar þegar hún sló inn svarið; stjórn­málamaður. Í það minnsta hrökk hún við, við viðbrögðin á skjánum og brosið hvarf af andlitinu. Augnablik sagði hún og lét sig hverfa. Inn um hálf­lokaðar dyr sá ég hana í áköfum samræðum við eldri mann, líklega yfirmann. Þau komu svo bæði fram skömmu síðar og töluðu sín á milli yfir tölvunni um mig líkt og ég væri ekki á staðnum. Enda mögulega stór­peninga­þvottakona. Þessi upphæð er undir viðmiðunum, sagði hann. Svo þú sleppir þessu í gegn. En skráðu þetta í kerfið og ef hún (ég) reynir þetta aftur þá gómar kerfið hana. Svo fór yfir­maðurinn og stúlkan kláraði að afgreiða mig. Ég er ennþá með 200 evrurnar í veskinu, var eitthvað rög við að nota þær,“ segir Hanna Katrín.

Þetta atvik mætti afskrifa sem sænska sérvisku en svo er ekki. Dóttir hennar fékk stuttu síðar harkalegri meðferð af öðrum banka. „Kvöldið eftir að ég kom heim eftir áhuga­verða og skemmtilega ferð til Álands­eyja vildi önnur dóttir mín ræða skrítinn póst sem hún hafði fengið frá viðskipta­banka sínum. Nefnilega þann að ef hún skilaði ekki inn skatt­skýrslum síðustu tveggja ára innan tveggja vikna frá dagsetningu póstsins yrði öllum banka­viðskiptum lokað á hana. Þegar hún sendi inn athugasemd á bankann vegna þessara harkalegu skilaboða kom í ljós að ástæðan var að hún er Politically Exposed Person í gegnum stór­varasama móður hennar. Skatt­skýrslurnar voru sendar og náms­stúlkan fær því enn að geyma sumar­hýruna sína í bankanum.“

Svo virðist sem starf Hönnu Katrínar geri hana geisla­virka meðal banka. „Viku síðar reyndi hin dóttir mín að millifæra sumar­hýruna sína af íslenska reikningnum sínum yfir á reikning sinn í bandaríska bænum þar sem hún stundar nám. Það gekk nú aldeilis ekki smurt fyrir sig, enda mjög grun­samleg aðgerð hjá Politically Exposed Person. Eftir nokkur tölvupóst­samskipti hrökk það í lag og náms­stúlkan fær að nota peningana sína,“ segir Hanna.

Þessu var þó ekki lokið. „Og víkur þá sögunni að fjórða og síðasta fjölskyldu­meðlimnum, henni Ragnhildur minni. Þegar hljóm­sveitin hennar Ukulellur er að komast yfir barm heim­frægðar og vill fara að rukka inn aðgangs­eyri eins og slíkar hljóm­sveitir gera, haldiði ekki að peninga­þvottakonan ég þvælist fyrir enn og aftur. Ragnhildur er í stjórn Ukulella (allar alvöru hljóm­sveitir hafa stjórn) og þarf því að gefa upp allar helstu upplýsingar eins og þær hvað makinn er að bardúsa dags daglega. Og af því að makinn er ég og Ragnhildur þar með Politically Exposed Person þá stendur í kerfinu að veita Ukulellum leyfi til að tengja kortaposa við reikning hljóm­sveitarinnar.  Ég er samt ennþá velkomin á næstu Ukulellutónleika og passa bara að mæta með seðla. Ætli þær tækju við evrunum mínum? Niður­staðan hér er að ég er lykil­manneskja í því að hindra mútur og spillingu hér á landi og jafnvel víðar. Ég og mitt fólk.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Honum er lýst sem ástsælum samstarfsmanni og kærleiksríkum fjölskyldumanni
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Samanburðurinn á tekjuskiptingu byggist á Gini-stuðlinum

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram