Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Tekur fréttamenn til bæna fyrir óhlutdrægni: „Ríkisútvarpið boðar samkennd með yfirstéttinni“

„Þau þrjú síðustu sem hafa dáið úr konungs­fjöl­skyldunni bresku höfðu að meðaltali lifað í 99 ára. Þetta er lítið úrtak og varasamt að draga of miklar ályktanir af því. En þetta fólk býr augljós­lega við góðan kost.“

Þetta skrifar Gunnar Smári Egilsson, fjölmiðla­maður og sósíal­isti, en hann hjólar í RÚV fyrir óvenju jákvæðar umfjöllun um Elísabetu, drottningu breska heims­veldisins. Hann bendir á að heppni hafi ekki ráð því hve lengi hún lifði.

„Lífslíkur í Bretlandi eru nú um 81 ár. En aðeins um 74 ár hjá fátækustu tíundinni. Á meðan best setta tíundin getur búist við að ná nærri 84 ára aldri. Og 99 ár síðan hjá toppnum, fólkinu sem á allt til alls og almenningur ber á höndum sér. Fátækasta tíundin, 6,7 miljón manns, myndi lifa tíu árum lengur ef hún fengi að búa við sama öryggi og velsæld og best setta tíundin. Þetta er mannfórn upp á 67 milljón mannár. Og henni linnir ekki að óbreyttu kerfi því það fæðast sífellt ný börn inn í aðstæður sem halda þeim fátækum fram á grafar­bakkann, þræla þeim út og slíta. Þessi börn deyja of snemma, en lifa líka skemur við góða heilsu. Að meðaltali missir fátækasta tíundin heilsuna vegna erfiðis og ills aðbúnaðar áður en hún kemst á eftirlauna­aldur. Eftir áratuga þrælkun tekur við stutt sjúkra­húslega og dauði.“

Gunnar Smári segir að nær væri fyrir Breta að horfast í augu við sögu sína. „Yfir­stéttinni í Bretlandi tekst að viðhalda þessu dráps­kerfi með því að ráðast gegn allri samkennd með þeim sem standa verst, en magna þess í stað upp ríka samkennd með þeim sem hafa það allra best. Nú hefur verið fyrir­skipuð þjóðar­sorg í Bretlandi vegna þess að 96 ára kona sofnaði svefninum langa. Nær væri að þjóðin horfðist í augu við hinn raun­verulega harm sem hún býr við, tilgangs­lausar mann­fórnir hins grimmilega þjóð­skipulag,“ segir gunnar Smári.

Hann segist þó hafa skilning á viðbrögðum margra sem syrgja drottninguna. „En auðvitað má skilja þessi viðbrögð Breta. Svo til allir íbúarnir hafa búið við það alla sína tíð að Elísabet drottning hafi verið kynnt þeim sem nánast hluti fjöl­skyldunnar. Flestir Breta vissi betur af fæðingu barna í konungs­fjöl­skyldunni en barna sem fæddust í næsta stiga­gangi, þurftu að hlusta og horfa á enda­lausar frásagnir af þessu fólki sem gerir ekkert og engum kemur í raun við,“ segir Gunnar Smári.

Hann segir þó óskiljanlegt hvernig frétta­fólk á Íslandi hagi sér. „En það er fullkomlega óskiljanlegt að frétta­fólk Ríkis­útvarpsins í lýðveldinu Íslandi mætti svart­klætt til að lesa fréttir af andláti Elísabetar. Það væri nær að frétta­mennirnir væru með sorgar­borða alla daga yfir misskiptingunni í Bretlandi og mann­fórnum hinnar spilltu yfir­stéttar þar. Og svo sem í mörgum öðrum löndum. Líka hér,“ segir Gunnar Smári.

Hann segir þetta pólitíska yfir­lýsingu hjá frétta­fólki. „Lýðræðið byggir á jöfnuði, að allt fólk sé jafnt og búi við sama rétt. En líka að allir eigi sama rétt á virðingu og helgi. Lýðræðið byggir á formlegum reglum, en líka siðum og venjum. Og það að flytja hingað inn viðbrögð breska ríkis­útvarpsins, að fella alla dagskrá samstundis í sorgar­búning þegar drottningin fellur frá, er ekki um góða siði eða sjálfsagðan virðingar­vott, heldur er þetta pólitísk yfir­lýsing frétta­fólksins um að við skulum feta sömu braut og breska yfir­stéttin hefur markað, sýna þeim sem þjást vegna óréttlætis samfélagsins engan samhug en þjálfa með okkur samkennd með þeim sem ekkert skortir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Vissu ekki að 1.468 skilaboð hefðu varðveist
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

„Við syrgjum sjómennina þrjá sem létu lífið í sjóslysinu í gær“

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum