Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Pólitík

Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Peningar

Skiptum lokið á þrota­búi Talays

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Innlent

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Kvikmyndaverðlaun Eddunnar 2024 – Á ferð með mömmu með flestar tilnefningar

Til­nefn­ingar til Kvik­mynda­verð­launa Eddunnar 2024 hafa verið gerðar opin­berar.

Kvik­mynda­verð­laun Eddunnar hafa verið veitt árlega af Íslensku kvik­mynda- og sjón­varps­aka­dem­í­unni frá árinu 1999 en hátíðin í ár markar þátta­skil, sam­kvæmt frétta­til­kynn­ingu sem birt­ist á Facebook-síðu verð­laun­anna, þar sem kvik­mynda- og sjón­varps­verð­laun­unum hefur verið skipt upp og verða Kvik­mynda­verð­laun Eddunnar 2024 afhent 13. apríl næst­kom­andi. Sjón­varps­verð­launin verða afhent á haust­mán­uðum.

Alls verða 20 verð­laun veitt á hátíð­inni í apríl, til kvik­mynda­verka sem voru frum­sýnd á 1. jan­úar 2023 til 31. des­em­ber 2023.

Heið­ursverð­laun ÍKSA verða einnig veitt, auk tveggja nýrra verð­launa: Erlend kvik­mynd árs­ins verður verð­launuð og Upp­götvun árs­ins en þau eru veitt ein­stak­lingi sem ekki hefur hlotið til­nefn­ingu áður í við­kom­andi fag­verð­launa­flokki en hefur vakið sér­staka athygli fyrir fram­úr­skar­andi fram­lag á árinu.

Alls voru send inn 39 verk til kvik­mynda­verð­launa Eddunnar og 132 inn­send­ingar til fag­verð­launa. Heim­ilda­myndir voru 8, heim­ilda­stutt­myndir 7, kvik­myndir 7 og stutt­myndir 11. 8 val­nefndir, 41 ein­stak­lingur sat í val­nefnd­unum fyrir hina 20 verð­launa­flokka. KPMG hefur yfir­um­sjón með kosn­ingu og taln­ingu atkvæða.

Kvik­mynda­verð­laun Eddunnar verða veitt þann 13. apríl næst­kom­andi í beinni útsend­ingu á RÚV.

Til­nefn­ingar eru sem hér segir:

BARNA- OG UNGLINGAMYND ÁRS­INS­KonniSætur (Felt Cute)

Þið kann­ist við…

ERLEND KVIKMYND ÁRS­INSAnatomy of a Fall (Fallið er hátt)Fallen Lea­vesKill­ers of the Flower MoonOppenheimer

Past Lives

HEIMILDAMYND ÁRS­INS­Heima­leik­ur­innSkuld

Smoke Sauna Sisterhood

HEIMILDASTUTTMYND ÁRS­INS­KonniSuper Soldier

Upp­skrift: lífið eftir dauð­ann

KVIKMYND ÁRSINSÁ ferð með mömmuTil­verur

Villi­bráð

STUTTMYND ÁRS­INS­Dun­hagi 11Sorg etur hjarta

Sætur (Felt Cute)

BRELLUR ÁRS­INS­Da­víð Jón Ögmunds­son, Dragos Vilcu, Árni Gestur Sig­fús­son & Rob Tasker fyrir Napól­e­ons­skjölinJean-Michel Boublil, Jörundur Rafn Arnarson fyrir Northern Comfort

Atli Þór Ein­ars­son fyrir Óráð

BÚNINGAR ÁRS­INS­Helga Rós V. Hannam fyrir Á ferð með mömmu­Helga Rós V. Hannam fyrir Kulda

Arndís Ey fyrir Tilverur

GERVI ÁRS­IN­SKristín Júlla Krist­jáns­dóttir fyrir Á ferð með mömmu­Kristín Júlla Krist­jáns­dóttir fyrir Kulda

Guðbjörg Huldís Krist­ins­dóttir fyrir Villi­bráð

HANDRIT ÁRS­INS­Hilmar Oddsson fyrir Á ferð með mömmu­Erl­ingur Óttar Thorodd­sen fyrir Kulda

Tyrf­ingur Tyrf­ings­son og Elsa María Jak­obs­dóttir fyrir Villi­bráð

HLJÓÐ ÁRS­INS­Matis Rei fyrir Á ferð með mömmu­Björn Vikt­ors­son fyrir Northern Comfort

Huldar Freyr Arnarson fyrir Smoke Sauna Sisterhood

KLIPPING ÁRS­INS­Gunnar B. Guð­björns­son og Kristján Loðm­fjörð fyrir Napól­e­ons­skjöl­in­Hend­rik Mägar fyrir Smoke Sauna Sisterhood

Ivor Šonje fyrir Tilverur

KVIKMYNDATAKA ÁRS­IN­SÓttar Guðnason fyrir Á ferð með mömmu­Árni Fil­ipp­us­son fyrir Napól­e­ons­skjölin

Ants Tammik fyrir Smoke Sauna Sisterhood

LEIKARI ÁRSINS Í AÐAL­HLUT­VERKI­Þröstur Leó Gunn­ars­son fyrir Á ferð með mömmu­Þröstur Leó Gunn­ars­son fyrir Tilverur

Gísli Örn Garð­ars­son fyrir Villi­bráð

LEIKARI ÁRSINS Í AUKA­HLUT­VERKIÓlafur Darri Ólafsson fyrir Napól­e­ons­skjöl­in­Hilmir Snær Guðnason fyrir Villi­bráð

Björn Hlynur Har­alds­son fyrir Villi­bráð

LEIKKONA ÁRSINS Í AÐAL­HLUT­VERKIKrist­björg Kjeld fyrir Á ferð með mömmu­Elín Hall fyrir Kulda

Vivian Ólafs­dóttir fyrir Napól­e­ons­skjölin

LEIKKONA ÁRSINS Í AUKA­HLUT­VERKI­Hall­dóra Geir­harðs­dóttir fyrir Kulda­Selma Björns­dóttir fyrir Kulda

Nína Dögg Fil­ipp­us­dóttir fyrir Villi­bráð

LEIKMYND ÁRS­INS­Heimir Sverr­is­son fyrir Napól­e­ons­skjöl­in­Hulda Helga­dóttir, Eggert Ket­ils­son fyrir Northern Comfort

Heimir Sverr­is­son fyrir Villi­bráð

LEIKSTJÓRI ÁRS­INS­Hilmar Oddsson fyrir Á ferð með mömmu­Anna Hints fyrir Smoke Sauna Sisterhood

Elsa María Jak­obs­dóttir fyrir Villi­bráð

TÓNLIST ÁRS­IN­STönu Kõrvits fyrir Á ferð með mömmu­Dan­íel Bjarna­son fyrir Northern ComfortEðvarð Egilsson fyrir Smoke Sauna Sisterhood

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Nikulás sást síðast á þriðjudag. Hann var þá með bláan bakpoka og klæddur í grænan sumarjakka.
Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027