Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

KR-ingar syrgja gullstjörnuna Kristinn Jónsson – Margfaldur meistari fallinn frá

Kristinn Ingvar Jónsson, fyrrum formaður Knattspyrnu­félags Reykja­víkur, er látinn. Hann lést á Lands­spítalanum í fyrradag, 81 árs að aldri. Morgun­blaðið greindi frá andlátinu.

Kristinn lék fótbolta með KR á gullaldar­árum félagsins og lék alls 81 leik fyrir félagið. Hann varð Íslands­meistari með liðinu 1965 og bikar­meistari árin 1962, 1964, 1966 og 1967. Hann var öflugur í félags­starfinu hjá KR og var formaður knattspyrnu­deildar félagsins frá 1976 til 1980.

Kristinn fæddist 22. nóvember 1940 í Reykjavík. Hann lauk sveins­prófi við Félags­prentsmiðjuna árið 1961 og starfaði lengst af við prentun. Hann stofnaði Formprent árið 1970 og stýrði því næstu rúmu 50 árin.

Þá varð Kristinn aftur formaður KR árið 1991 og var í tólf ár, til 2003. Hann var sæmdur gull­stjörnu KR árið 1999 og var einnig gerður að heiðurs­félaga. Þá vann hann einnig gott starf fyrir knattspyrnu­hreyfinguna í heild og var sæmdur silfur­merki KSÍ árið 1987 og gullmerki sambandsins árið 1992.

KR-ingar minnast fallins meistara á síðu félagsins í morgun:

„Kristinn var KR-ingur í húð og hár. Lék knatt­spyrnu með meist­ara­flokki KR frá sumrinu 1959, á gull­ald­arár­um fé­lags­ins og lék alls 81 leik fyrir KR. Kristinn var ætíð hress og gefandi, gaf sig á tal við alla innan félagsins, bæði sem formaður KR og eftir hans formannatíð. Hann sinnti KR af alúð og var sæmdur gull­stjörnu KR árið 1999.Kristinn vann ómetanlegt starf fyrir íslenska knattspyrnu­hreyfingu. Hann hlaut silfur­merki KSÍ árið 1987 og gullmerki KSÍ árið 1992. Það verður mikill missir af Kristni, einkum á laugar­dögum í getrauna­kaffi í félags­heimili KR, þar sem vinahópur hans hittist reglulega.Blessuð sé minning góðs manns.“

Á stuðnings­manna­síðu KR-inga á Facebook minnast áhangendur liðsins Kristinns heitins. Blaða­maðurinn Andrés Magnússon er þeirra á meðal. „Kiddi KR er allur og mikil eftirsjá í þeim magnaða manni. Guð blessi minningu hans og áfram KR!,“ segir Andrés.

Fjölmiðla­maðurinn Egill Helgason tekur líka til máls á stuðnings­manna­síðunni. „Skarð fyrir skildi. Kiddi var höfðingi,“ segir Egill.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Maðurinn ók á röngum vegarhelmingi undan lögreglu í Mosfellsbæ, stöðvaði síðan bílinn og hljóp á brott.

Hótað með eggvopni í ráni á höfuð­borgar­svæðinu

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana