Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Mugison skellti sér í sjósund og fyllti Fjárhúsið: „Hvaðan kemur allt þetta fólk?“

Mugison og Rúna í fjörunni í Norðurfirði.
Mugison og Rúna í fjör­unni í Norð­ur­firði. Mynd: Reynir Traustason

Tónlistar­maðurinn Mugison gerði sér lítið fyrir í heimsókn sinni í Árnes­hrepp á Ströndum um helgina og skellti sér í sjósund í botni Norður­fjarðar. Með kappanum í köldu hafinu var kona hans og samstarfs­maður, Rúna Esra­dóttir og nokkur fjöldi annarra sjósunds­kappa. Mugison kom fram á kvöldvöku í Fjárhúsi Ferða­félags Íslands á Valgeirs­stöðum í Norður­firði og óhætt er að segja að hann hafi slegið í gegn því húsið fylltist af fólki sem streymdi hvaðanæva að til að hlusta á tónlistar­manninn. Í Árnes­hreppi eru aðeins 40 manns með lögheimili.

Fullt hús í Fjár­hús­inu.

„Hvaðan kemur allt þetta fólk?“ spurði Mugison gáttaður þegar hann áttaði sig á fjöldanum.

Hann tók mörg af sínum bestu lögum. Rúna söng með honum í laginu Gúanós­telpan sem fyrir löngu er orðið sígilt. Fyrir­spurn barst úr sal um það hver væri gúanós­telpan. Mugison svaraði því opið og gaf nokkra möguleika, meðal annars sjálfan sig. Tónlistar­maðurinn var klappaður upp ítrekað áður en tónleikunum lauk og mannhafið leystist upp og hélt til síns heima.

Mugison og Rúna á svið­inu í Fjár­hús­inu.
Mugison í Norð­ur­firði.
Gestir á öllum aldri.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt