Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

SJÁÐU MYNDIRNAR – Einstök glitskýjamyndun á Austurlandi

Náttúru­fegurðin á Austur­landi er óumdeild en undan­farna daga hefur verið einstak­lega falleg þar en Jónína Guðrún Óskars­dóttir náði nokkrum gull­fallegum ljós­myndum af fegurðinni.

Þeir sem eru vinir Austfirðinga á Facebook hafa sjálfsagt tekið eftir fjöldi ljósmynda af glit­skýjum sem voru sérlega greinileg fyrir austan síðustu daga. Jónína Guðrún Óskars­dóttir náði nokkrum afar fallegum ljós­myndum á Fáskrúðs­firði og birti á Facebook. Gaf hún Mannlífi góðfúslegt leyfi til birtingar á þeim.

Ljósmynd; Jónína Guðrún Ósk­ars­dóttir

En hvað er þetta fyrirbæri, glitský? Á vef Veður­stofu Íslands má lesa eftir­farandi útskýringu á glit­skýjum:

Glitský myndast þegar óvenju­kalt er í heið­hvolfinu (um eða undir -70 til -90 °C), og eru úr ískristöllum, eða úr samböndum ískristalla og saltpétursýru-hýdrötum (t.d. HNO3.3H2O). Þessi síðarnefndu ský geta valdið ósón­eyðingu, en yfirborð ískristall­anna getur virkað sem hvati í efnaferli þar sem klór í heið­hvolfinu breytist í skaðleg ósóneyðandi efni (t.d. klór-mónoxíð ClO).

Kristallarnir í skýjunum beygja sólar­ljósið, en mismikið eftir bylgjulengd þess. Þannig beygir blátt ljós meira en rautt. Rauða ljósið kemur því til okkar undir öðru horni en það bláa, þannig að við sjáum það koma frá öðrum hluta glit­skýsins. Litaröðin frá jaðri inn til miðju skýsins er stundum eins og vísuorðin: gulur, rauður, grænn og blár en oft er skýið einnig hvítt í miðju. Litirnir eru líka háðir stærðar­dreifingu agna í skýjunum, þannig að oft má sjá rauða, gula og græna flekki í bland.

Þau sem vilja skoða fleiri ljós­myndir eftir Jónínu Guðrúnu geta kíkt á eftir­farandi hlekki:

https://www.facebook.com/IcelandicQueenOfAuroraBorealis/

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim