11 ára stúlka lést eftir fuglaflensusmit í Kambódíu. Var þetta fyrsta skráða tilfelli flensunnar þar í landi síðan 2014. Stúlkan var greind á miðvikudaginn í síðustu viku þegar hún fékk háan hita, hósta og hálsbólgu en hún lést fljótlega í kjölfarið. Tekið var sýni úr dauðum fugli sem fannst fyrir utan heimili stúlkunnar en heilbrigðisráðherra Kambódíu, Mam Bunheng, varaði við aukinni hættu á smiti á meðal barna sem leika sér að fuglahræum eða eru að öðru leiti í návígi við fugla. Íbúar landsins eru varaðir við því að snerta dauða eða veika fugla.
Einkenni fuglaflensunnar eru svipuð þeim sem fylgja hefðbundnum flensum, hiti, hósti og hálsbólga. Í alvarlegum tilfellum geta sjúklingar þróað með sér lífshættulega lungnabólgu. Þessi tiltekna veira hefur fundist hjá um 870 manns í 21 landi, 457 dauðsföll hafa orðið vegna hennar.
Fyrr í mánuðinum gaf Alþjóðarheilbrigðismálastofnunin út tilkynningu þar sem sagt var að enn væri talin lítil hætta á að veiran smitist á milli fugla og manna. Ekki er þó hægt að útiloka að sú staða breytist og er fólk hvatt til þess að hafa varann á.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir