Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Heimsmet á Íslandi: Skoruðu 160 stig í einum leik – „Ég reyndi alls ekki að setja met“

Danny Shouse og Ívar Webster eru með eftir­minnilegri bandarísku leik­mönnum sem hafa spilað í íslenska körfu­boltanum, en Danny spilaði eitt tímabil með Ármanni í 1. deild og síðan tvö með Njarðvík í úrvals­deild. Ívar kom á sama tíma til Íslands og Danny og lék með Skallagrím í 1. deildinni eftir stutt stopp hjá KR. Ívar var öllu lengur á Íslandi en Danny, og fékk íslenskan ríkis­borgararétt árið 1984.

Báðir leikmenn áttu glæsi­legan feril hér á landi: Danny varð Íslands­meistari öll þrjú árin sem hann lék hér; meistari í 1. deild með Ármanni árið 1980 og Íslands­meistari í úrvals­deild árin 1981 og 1982 með Njarðvík, en þetta voru fyrstu stóru titlar Njarðvíkinga í sögunni og margir áttu eftir að fylgja í kjölfarið.

Ívar lék lengst af með Haukum hér á landi og átti mikinn þátt í að félagið komst um tíma á toppinn í íslenskum körfu­bolta; færði félaginu tvo bikar­meistara­titla og einn Íslands­meistara­titil.

Lið þeirra Danny og Ívars mættust í Borgarnesi þann 1. desember árið 1979, í leik sem fór í sögu­bækurnar og verður þar um ókomna tíð.

Ármenningar höfðu sigur í leiknum gegn Skallagrími, lokatölur urðu 118 stig gegn 109.

Danny skoraði, eins og frægt er, 100 stig í leiknum, en fram að þeim tíma var aðeins vitað um einn leikmann í heiminum sem hafði gert 100 stig í einum leik; það var sjálfur Wilt Chamberlain sem skoraði 100 stig með liði Philadelphu gegn New York árið 1962 í NBA deildinni.

„Danny Shouse hitti með eindæmum vel og þó reyndu Borgnesingar allt til að stöðva hann. Þeir settu tvo menn á hann á köflum en allt kom fyrir ekki,“ sagði í frétt Morgun­blaðsins um leikinn fræga í desember árið 1979 í Borgarnesi. Og einnig þetta:

„Ármanns­liðið byggir eingöngu á Danny – aðrir leikmenn eru í statista­hlutverkum og kunna lítið fyrir sér í íþróttinni.“

Sjálfur var Danny undrandi þegar hann heyrði eftir leik að hann hefði skorað 100 stig í leiknum:

„Ég reyndi alls ekki að setja met og hefði hæglega getað skorað fleiri körfur ef ég hefði vitað af því að heims­metið væri í hættu,“ sagði hann.

Á þessum tíma voru ekki komnar til sögunnar 3ja stiga skot, en Danny var þekktur fyrir skot sem voru langt fyrir utan 3ja stiga línuna sem varð að veruleika nokkrum árum síðar.

En það sem gerir þennan leik enn eftir­minnilegri er sú staðreynd að Ívar Webster skoraði 60 stig í leiknum; þarna var því um að ræða metjöfnun hjá einum leikmanni – Danny Shouse – sem jafnaði met Wilt Chamberlain, en líka heimsmet; aldrei hafa tveir leikmenn í körfu­boltaleik skorað eins mikið í einum leik – 160 stig!

Ef einhver getur fundið leik þar sem tveir leikmenn í sama leik skora samtals 160 stig eða meira væri mjög áhugavert að lesa um það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim