Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Aðalsteinn um stýrivaxtahækkun Seðlabankans: „Bara ömurlegt að þurfa að horfa upp á þetta“

Aðalsteinn Árni Baldursson.
Aðal­steinn Árni Bald­urs­son.

Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Framsýnar stétta­félags, er afar ósáttur við nýja stýri­vaxtahækkun Seðla­bankans.

Seðla­bankinn tilkynnti í morguns­árið að stýri­vextir yrðu nú hækkaðir um 0,5 prósentu­stig og standa því í 6,5 prósentum. Ástæðan er sögð lakari verðbólgu­horfur.

Formaður Framsýnar stétta­félags, Aðalsteinn Árni Baldursson sagðist í samtali við Mannlíf vera afar ósáttur við þessa hækkun.

„Ég verð að viðurkenna að með þessa hækkun og þá hækkun sem kom síðast, þá hefur mér fundist sem Seðla­bankinn sé ekki alveg í takti við stöðuna í þjóð­félaginu. Í verð­bólgunni sem er núna og því efnahags­ástandi sem við búum við í dag, og það tengist ekki bara okkur, heldur líka því sem er að gerast í Evrópu, þar er auðvitað stríð í gangi, þá hefði maður viljað að Seðla­bankinn væri með okkur í liði og auðvitað líka stjórn­völd sem við höfum verið að gagnrýna mikið. Þau hafa verið að demba á okkur alls kyns hækkunum á gjaldskrá og öðru um áramótin. Þetta er mjög bagalegt og sorglegt og bara ömurlegt að þurfa að horfa upp á þetta,“ sagði Aðalsteinn og bætti því við að hann hefði verið í alþjóð­legu samstarfi þar sem hann hafi ekki séð eins miklar launa­hækkanir og á Íslandi en segir ástæðuna augljósa.

„Þar virðist efnahags­stjórnunin bara vera betri þannig að menn eru ekkert að fást við þessi innan­búðarmein sem ég vil meina að sé í íslenskri efnahags­stjórnun. Og það má svo ekki gleyma þetta með verð­bólguna, þar hefur maður verið að horfa upp á það að fjármagns­eigendur moka til sín peningum á meðan þeir sem skulda, þeirra vandi verður meiri. Þannig að þetta er bara staðan núna. Menn eru svolítið á fylleríi, þeir sem geta haft áhrif á þessa hluti.“

Aðalsteinn, sem er í miðjum samninga­viðræðum um þessar mundir, segir heilmarga hafa heyrt í honum varðandi ástandi að undan­förnu. „Lánin þeirra hafa verið að hækka alveg gríðar­lega. Seðla­bankinn má aldrei líta á sig sem eitthvað eyland. Hann er bara hluti af þjóðinni og hluti af okkur og þurfa að vinna meira með okkur, með þeim sem verst standa í þjóð­félaginu, skulda mest.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim