Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Björn skrifar fallegan pistil um eiginkonuna: „Viltu núna heyra af snilldinni í bókinni?“

Björn Birgisson.
Björn Birg­is­son.

Björn Birgisson segist eiga erfitt með að hlusta á aðra en hann hafði þó unun af að hlusta á eigin­konuna segja honum frá bók sem hún las.

Samfélags­rýnirinn skörulegi frá Grindavík, Björn Birgisson er vanur að skrifa nokkuð harðorða pistla á Facebook, þar sem hann gagnrýnir ýmislegt sem miður fer í samfélagi okkar. Í nýjustu færslu sinni brá hann þó út af vananum og skrifaði nokkuð fallega færslu og í raun sjálfs­gagnrýni þar sem hann viðurkenndi að hann eigi stundum erfitt með að hlusta á aðra. Í pistlinum segir hann frá því hvað hann hafði mikla unun af að hlusta á konu sína segja honum frá bók sem hún hafði nýverið lesið. Megum við mörg draga lærdóm af færslu Björns og hlusta betur á aðra, annað er í raun dóna­skapur. Færsluna má lesa hér fyrir neðan.

„Að hlusta – en heyra ekkert!

**********– Þegar Fennir í sporin – er titill bókar eftir Steindór Ívarsson.Ástríkur bóka­forlag gaf út 2021.**********Af bókar­kápunni:Er rétt að rekja spor sín þegar fennt hefur í þau?**********Ingibjörg lestrar­hestur tók þessa bók á bóka­safninu.Heillaðist algjör­lega af inni­haldinu og gat varla lagt hana frá sér fyrr en allir þræðir voru upplýstir og lágu fyrir.En þræðirnir eru margir og spinnast snilldar­lega og mynda heild sem kemur verulega á óvart.**********Í gærkvöldi fylgdi ég minni yndislegu konu til hvílu eins og sérhvert kvöld.Hef það hlutverk að setja sérstaka augndropa í grænu augun hennar til að vernda þau og vinna gegn glákunni, sjúkdómi sem áður fyrr blindaði fólk, en er nú hægt að halda niðri.**********Bjössi minn, mig langar svo að segja þér frá frábærri bók sem var að ljúka við að lesa í kvöld!Æi, ekki núna, ég þarf að ljúka við pistla sem ég er með í vinnslu, kannski bara á morgun!Skynjaði vonbrigðin með svar mitt.**********Í morgun kom þetta „á morgun!“Áttum brýnu erindi að sinna í ReykjavíK fyrir hádegið í dag.Við Þorbjörninn sagði þessi elska; viltu núna heyra af snilldinni í bókinni?Já, já, slökkti á útvarpinu og sviðið var hennar.Hún naut þess að segja frá fólkinu í bókinni, lífi þess, hæðum og lægðum og svo örlögum þess og þeirra nánustu, nánast frá unglings­aldri til fullorðinsára þegar dauðinn kallaði á eitt þeirra.**********Ég skynjaði þörf hennar til að segja frá sinni upplifun og truflaði sem minnst, einbeitti mér frekar að því að hlusta og við það rann upp fyrir mér að mér lætur ekkert sérstak­lega vel að hlusta á aðra!Hef litla eirð í mér til þess, hugurinn er alltaf farinn út um víðan völl í leit að viðfangs­efnum, þannig að ég hætti ósjálfrátt að heyra – án þess að láta viðmælandann vita af því!Ekki í morgun.Naut þess að fá innsýn í þetta snilldar­verk – frá Þorbirninum og alla leið inn í Kópavog!Vel rúmlega hálftími af Kilju Ingibjargar og ég virkilega naut þess að heyra hvernig hún lýsti upplifun sinni, hvernig hún skynjaði bókina.Hvernig hún afgreiddi ýmislegt sem miður fór í bókinni út frá sínum heil­brigðu lífs­viðhorfum og hvernig hún gat tekið þátt í lífs­hlaupi sögu­persónanna með sína jákvæðni að vopni.**********Að hlusta – en heyra ekkert.Hef svolítið verið þar.Kannski verður breyting á því.Vonandi!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim