Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Marinó tjáir sig um kjarabaráttu Eflingar: „Svo er sagt að Efling sé með ósvífni“

Marinó G. Njálsson, fyrrum formaður Hagsmuna­samtök Heimil­anna segir að nú verði að fara að „stokka spilin og gefa upp á nýtt“, þegar kemur að launa­málum í landinu.

Í nýrri Facebook-færslu skrifaði Marinó Gunnar Njálsson um kjara­baráttu Eflingar og bendir á nokkrar tölulegar stað­reyndir. Ber hann meðal annars saman arðgreiðslur stór­fyrirtækja og kröfur Eflingar um bætt kjör. Segir hann að kominn sé tími til að breyta hlutunum og að „finna verður nýtt jafnvægi sem byggir á réttlæti til handa fólki á lægstu launa­töxtum og lífeyrisþegum sem treysta eingöngu á bætur frá TR“.“
Færsluna má lesa í heild sinni hér fyrir neðan.

„Hún er alveg skelfileg „frekjan“ í Eflingu. Biðja um 8.000 kr. að jafnaði meira en fengust út úr samningum SGS.

Þetta gerir 168.000.000 kr. á mánuði miðað við að þessi greiðsla bærist til 21.000 félags­manna eða rétt rúmlega 2 ma.kr. á ári. Það er ekki einu sinni sex mánaða­laun forstjóra SKEL með kaupauka og kauprétti, en fulltrúi hans greiddi atkvæði með verkbanni.Fyrir mánaða­laun forstjóra SKEL væri hægt að borga hátt í 2.500 manns 8.000 kr. á mánuði (og þá er ég ekki að taka með kaup­réttinn). Fyrir mánaðar­laun banka­stjóranna þriggja (en þeir greiddu líka atkvæði með verkbanni) bætast við 2.000 manns, ef ekki fleiri. Ársfjóðrungshagnaður hvers af þessum fyrir­tækjum um sig er hærri en hin „ósvífna“ krafa Eflingar hljóðar upp á. En arðsemis­krafa fyrir­tækjanna er ekkert ósvífin. Hún er „eðlileg“. Bætum svo við forstjóra Icelandair og þá er hægt að hækka laun 600 manns til viðbótar. Fimm manns á ofur­launum eru með hærri mánaðar­laun en kostar að greiða 5.100 manns 8.000 kr. í viðbótar­laun á mánuði! Svo er sagt að Efling sé með ósvífni. Lítið í eiginn barm.Væri gengið að þessu, sæi ekki högg á vatni arðgreiðslna til eigenda þeirra fyrir­tækja sem greiddu með verk­banninu. Kann fólk ekki að skammast sín?Ég krefst þess, að skattur á fjármagns­tekjur yfir 5 m.kr. á ári verði hækkaður í 44% og hvalreka­skattur upp á 80% verði settur á arðgreiðslur sem eru umfram saman­lagða fjárhæð kaupauka fólksins á „gólfinu“ hjá hverjum fyrirtæki fyrir sig. Við hreinlega verðum að fara að stokka spilin og gefa upp á nýtt. Finna verður nýtt jafnvægi sem byggir á réttlæti til handa fólki á lægstu launa­töxtum og lífeyrisþegum sem treysta eingöngu á bætur frá TR.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim