Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

„Aldrei á seinni tímum hefur íslensk þjóð fengið álíka forskot á Áramótaskaupið“

Ritstjórinn og skáldið Sigmundur Ernir Rúnarsson segir í skoðana­pistli sínum að „það hefur verið beinlínis átakanlegt að fylgjast með störfum fulltrúa meirihluta fjár­laganefndar Alþingis á síðustu dögum, þar sem þeir hafa varið með kjafti og klóm sértæka fjár­úthlutun á hundrað milljóna króna styrk til sjónvarps­stöðvarinnar N4 á Akureyri, en þar hefur farið saman glórulaus spilling og sprúðl­andi misbeiting á fjár­heimildum ríkis­sjóðs.“

Heldur áfram af sama krafti:

„Sjaldan ef nokkurn tíma í seinni tíma sögu löggjafar­samkund­unnar hefur lands­mönnum birst jafn mikill hroki og einbeittur ósómi í afgreiðslu fjár úr sameiginlegum sjóðum lands­manna og einmitt við þá ákvörðun stjórnar­meirihlutans að hlaða fé á einn fjölmiðil, umfram aðra, þvert á jafnræðis­reglu og almenna skynsemi um úthlutun almanna­fjár.“

Hann bendir á að „reglur um ríkis­styrki til handa einka­reknum fjöl­miðlum á allra síðustu árum hafa verið jafn almennar og þær hafa verið umdeildar, en almennar hafa þær þó alltént verið, fram að þessu, altso að allir sitji við sama borð. En þá ákveður formaður fjár­laganefndar upp á sitt einsdæmi að fara á svig við almennu reglurnar og rétta einum miðli í eigin héraði svo sem eins og hundrað milljóna króna dúsu, óravegu frá umsvifum hans miðað við aðra fjölmiðla í landinu, og fær til þess samþykki frá mági helsta stjórn­anda viðkomandi fjöl­miðils sem situr einnig í fjár­laganefnd.

Og allt er þetta gert án vitneskju þess ráðherra sem fer með málaflokk fjölmiðla, en sá hinn sami vissi ekki betur en að fara ætti að almennum reglum um stuðninginn við einka­rekna fjölmiðla þegar hann var spurður út í þennan einleik meirihluta fjár­laganefndar.“

Sigmundur Ernir nefnir einnig að „formaður nefndarinnar, spurður um hugsanlegt vanhæfi mágsins, hefur á orði að sá hinn sami hafi ekki komið að afgreiðslunni að öðru leyti en því að hann hefði skrifað undir samþykkt meirihlutans.

Aldrei á seinni tímum hefur íslensk þjóð fengið álíka forskot á Áramóta­skaupið. En þetta gerist samt án verulegra athugasemda frá forkólfum ríkis­stjórnarinnar. Þetta er látið hjá líða. Og það merkir ekkert minna en samþykki og velþóknun. Svona má stjórn­sýslan vera. Það má vel sníða reglurnar að sérþörfum einstakra fyrir­tækja.“

Hann lýkur pistli sínum á þessum orðum:

„Reglu­verkið á íslenskum fjölmiðla­markaði er óskapnaður. Ekkert svið atvinnu­lífsins hér á landi býr við annað eins ójafnræði. Ríkis­miðlinum er úthlutað ótakmarkað forskot á kostnað einka­rekinna miðla. Og til að rétta hlut þeirra síðarnefndu á nú einmitt að skekkja stöðuna enn frekar. Og það til heima­brúks, fyrir persónur og leikendur í fjár­laganefnd.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Frétt

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Ráðherrar segja þróun heimsmála og breyttar áskoranir kalla á sterkari borgarlega innviði. Samningarnir voru undirritaðir að loknum fundi þjóðaröryggisráðs.
Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis