Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Mótmæli á Austurvelli vegna aðfarar að blaðamönnum

Mótmæli á Austurvelli vegna aðfarar að blaðamönnum. – Myndin tengist fréttinni ekki beint
Mótmæli á Aust­ur­velli vegna aðfarar að blaða­mönnum. – Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint Mynd: Róbert Reynisson

„Fjölmennum á Austur­völl og sýnum samstöðu með frjálsum fjöl­miðlum. Að lögreglan á Norður­landi Eystra skuli kalla til yfirheyrslu fjölmiðla­fólk fyrir gagnrýna umfjöllun með erindi til almennings er óásættanleg skerðing á tjáningar­frelsi,“ sagði í fundar­boðinu.

Ungliða­hreyfingar Pírata, Samfylkingar, Sósíal­ista, Viðreisnar og Vinstri grænna boðuðu til mótmæla á Austur­velli í dag.

Margmenni var við mótmælin á Austur­velli klukkan 14 í dag sem og á Ráðhús­torginu á Akureyri, þrátt fyrir mikinn kulda. Fjölmargir tóku til máls, þar á meðal Lenya Rún Taha Karim, vara­þingmaður Pírata, Auður Jóns­dóttir, rithöfundur og einnig mátti sjá Kristinn Hrafnsson, ritstjóra Wikileaks.

Kristinn tók til máls á mótmæla­fundinum. Þar fór hann um víðan völl og gagnrýndi harðlega ýmsa sem hafa komið að málinu, þá sérstak­lega Sjálfstæðis­menn. Líkti hann meðal annars Brynjari Níelssyni, aðstoðar­manni dómsmála­ráðherra, við tjóðraðan hund sem urraði og gelti að öllum.

„Og ég ætla nú ekki einu sinni að nefna með nafni aðstoðar­mann hans [dómsmála­ráðherra] sem þótti ekki einu sinni nógu góður af flokknum til að starfa á þingi og hefur nú verið tjóðraður við staur í túnfæti dómsmála­ráðuneytisins hvar hann urrar og geltir að gestum og gangandi eins og vitfirringur,“ sagði Kristinn.

Eins og fram hefur komið hefur Páley Borgþórs­dóttir, lögreglu­stjóri á Norður­landi eystra, boðað fjóra blaðamenn til yfirheyrslu. Þeir hafa stöðu sakbornings í því máli sem til rann­sóknar er.

Óljóst hvað er verið að rannsaka

Málið, sem er að ýmsu leyti óskýrt, virðist tengjast meintu hvarfi á farsíma Páls Steingríms­sonar skips­stjóra hjá Samherja hvar ætlað er að hafi verið að finna gögn sem sýna að hin svokallaða Skæruliða­deild Samherja hafi haft uppi meðal annars áform um að grafa undan trúverðug­leika blaða­manna sem fjölluðu um Samherja­skjölin, umsvif sjávar­útvegs­fyrir­tækisins í Namibíu.

Þetta leiddi svo til frétta­flutnings af aðgerðar­áætlunum téðrar skæruliða­deildar í fréttum sem fyrst birtust á Kjarnanum og í Stundinni en voru svo teknar upp á flestum miðlum öðrum.

Kæra Aðalsteins þingfest í héraðsdómi í morgun

„Minn umbjóðandi hefur hug á að fá niður­stöðu í þetta mál áður en tekin verður af honum skýrsla og það er vonandi þannig að það verði búið að úrskurða um þetta áður en að skýrslu­tökunni kemur,“ segir Gunnar Ingi Jóhannsson lögmaður Aðalsteins í hádegis­fréttum útvarps.Krafa Aðalsteins Kjartans­sonar blaða­manns um úrskurð um lögmæti skýrslu­töku lögreglu í tengslum við svonefnt skæruliðamál Samherja var þingfest í Héraðs­dómi Norður­lands eystra í morgun. Lögregla fær frest til að skila greinar­gerð um málið.

Aðalsteinn er einn fjögurra blaða­manna sem fengið hafa réttar­stöðu sakbornings í máli lögreglunnar á Norður­landi eystra vegna meintra brota gegn friðhelgi einkalífs í tengslum við umfjöllun fjölmiðla um svonefnda „skæruliða­deild“ útgerðar­félagsins Samherja.

Aðalsteinn sem er blaða­maður á Stundinni,  Þóra Arnórs­dóttur, ritstjóri Kveiks, Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans og Arnar Þór Ingólfsson, blaða­maður á Kjarnanum, hafa öll réttar­stöðu sakbornings og hafa verið boðuð í skýrslu­töku á morgun, mánudag. Því er ekki langur tími til stefnu til að fá úrskurð um lögmæti skýrslu­tökunnar.

Kristinn Hrafns­son, rit­stjóra Wikileaks frá hægri.
Mótmæli á Aust­ur­velli vegna aðfarar að blaða­mönnum.
Auður Jóns­dóttir, rit­höf­undur
Auður Jóns­dóttir, rit­höf­undur
Mótmæli á Aust­ur­velli vegna aðfarar að blaða­mönnum.
Mótmæli á Aust­ur­velli vegna aðfarar að blaða­mönnum.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Í grein fyrir breska lesendur lýsir Kristjana Guðbrandsdóttir því hvernig hún nýtur vetrarins í Reykjavík án þess að treysta alfarið á húshitun.
Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki