Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Hugleiðingar Camillu: „Þau vilja mig, þau vilja gæðastundir með mér“

Camilla Rut Rúnarsdóttir Mynd / Aldís Pálsdóttir
Camilla Rut Rún­ars­dóttir Mynd / Aldís Páls­dóttir Mynd: Aldís Pálsdóttir

Athafna­konan og áhrifavaldurinn, Camilla Rut Rúnars­dóttir, hvetur fólk til að hugsa sinn gang um jólin; hugsa um um það sem skiptir mestu máli: Að eiga gæða­stundir með fjöl­skyldunni.

Camilla þekkir jóla­stressið vel verandi tveggja barna móðir; hún rabbaði við fylgjendur sína á Instagram og beindi orðum sínum sérstak­lega til foreldra:

„Smá hugleiðingar til foreldra, oftast eru það mömmur, sem eru á smá yfir­snúning svona korter í jól. Jólin koma þó að allt sé ekki eftir okkar höfði og upp á tíu. Jólin koma þó að þvotta­hrúgan sé ekki brotin saman og að allt sé tipp topp inn í öllum skápum. Jólin koma þó að bakara­ofninn sé ekki nýþrifinn. Jólin koma svo sannarlega þó við bökum ekki eina smáköku­sort í viðbót eða sleppum því yfirhöfuð,“ sagði Camilla og bætti því við að hún ætti sjálf frekar erfitt með að taka þetta til sín:

„Ég reyndar viðurkenni að týpan sem ég er, þá virkar það ekki fyrir mig að heyra: „Jólin koma samt.“ Ég fæ bara kvíðakast við að heyra þetta.“

Hún segist skilja það og „að manni langar bara að gera vel, manni langar að hugsa fyrir öllu. Og vera svolítið þunga­miðjan í því að allir fái sitt og að öllum líði vel yfir jólin. Ég í raun og veru skil það bara manna best. En stundum þegar maður er kominn á smá yfir­snúning er gott að stoppa sig af og hugsa aðeins, eða öllu heldur forgangs­raða kannski.“

Bætir við:

„Eins og ég segi, það er ekkert að því að gera sitt besta og leggja sig fram að allir fái sitt og öllum líði vel, en maður verður að hugsa um sig sjálfan líka.“

Camilla spyr:

„Hvað vilja börnin mín um jólin? Ég hugsa það út frá því, hvað vildi ég sem barn. Þau vilja mig, þau vilja gæða­stundir með mér. Þau vilja ekki stressið mitt, þeim er drull um ofninn, þvotta­fjallið og svo framvegis. Ég man bara eftir því sjálf sem barn að það eina sem ég vildi var að einhver myndi stíga út úr eldhúsinu, setjast hjá mér, spjalla við mig, spila við mig og bara vera með mér. Og ef maður hugsar út í það þá er þetta ennþá það eina sem ég vil, gæðatími með fólkinu mínu. Þannig að til þín, sem ert að reyna þitt besta og ert kannski komin á smá yfir­snúning, þetta er allt í lagi. Það eina sem við þurfum, og viljum, er fólkið okkar. Hitt skiptir engu máli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

„Ég er búin að fá svo margar fallegar kveðjur og sendingar“
Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Innlent

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Halla Tómasdóttir segir að margir karlar glími við einmanaleika og óvissu um hlutverk sitt í samfélaginu.

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja