Edda Björgvinsdóttir vill stofna „danspartý-gengi“.
Hin ástsæla leikkona Edda Björgvinsdóttir skrifaði stutta en bráðskemmtilega færslu á Facebook í dag. Þar segist hún hafa verið boðið í danspartý í gær og skemmt sér ólýsanlega vel. Edda spyr svo Facebook-vini sína hvort ekki þurfi að stofna „danspartý-gengi“ en að hún myndi velja diskótekara sem spilaði lög frá sjötta og sjöunda áratugnum.
Hér má lesa færsluna skemmtilegu:
„Mér var boðið í DANSPARTÝ í gær og það var ólýsanlega skemmtilegt að hoppa inn í partý – dansa af sér rassg…. og skoppa dansandi heim í ENDORFÍN-vímu!!!!!!
Eigum við að stofna danspartý-gengi?Hittast á morgnana/eftirmiðdaga/kvöldin og dansa?Ég myndi velja diskótekara sem spilar fifties- og sixties lögin gömlu. Svo Latino og Abba og Elvis, Bítlana, Stones ….. o.s.frv. (listinn er endalaus!).“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir