Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Karlmaður dæmdur fyrir 260 kannabisplöntur á Vestfjörðum

Lögregla fann plönturnar við leit í húsinu

Kannabisplöntur
Kanna­bis­plöntur Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Plantlady223

Karlmaður af albönskum uppruna hefur verið dæmdur í sex mánaða skilorðs­bundið fangelsi fyrir umfangs­mikla kannabis­ræktun í Reyk­hólahreppi. Dómur féll í Héraðs­dómi Vestfjarða í vikunni.

Maðurinn, Aldorino Bregu, var ákærður fyrir fíkniefna­lagabrot með því að hafa 10. ágúst síðastliðinn haft í vörslum sínum 260 kannabis­plöntur í sölu- og dreifingar­skyni. Plönturnar vógu samtals 126,4 kíló og höfðu verið ræktaðar um nokkurt skeið í húsnæði í Reyk­hólahreppi.

Lögregla fann plönturnar við leit í húsinu. Þar var jafnframt lagt hald á umfangs­mikinn búnað sem notaður var við ræktunina, meðal annars 62 gróðurhúsa­lampa, 46 spenna, loft­blásara, viftur, loftsíur, 356 blóma­potta og 310 stangir í blóma­potta.

Bregu játaði brot sín skýlaust fyrir dómi og hafði ekki áður gerst sekur um refsivert brot svo kunnugt væri.

Refsing hans var ákveðin sex mánaða fangelsi, en fullnustu hennar frestað í tvö ár haldi hann almennt skilorð.

Kannabis­plönturnar og ræktunar­búnaðurinn voru gerð upptæk. Bregu var jafnframt gert að greiða rúmlega 1,1 milljón króna í málsvarnar­þóknun og annan sakar­kostnað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Þorðu ekki að vera heima og fluttu sjö sinnum
Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Þá var einnig tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna