Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Hlaut þriggja ára dóm fyrir að misnota blaðburðardreng: „Eruð þið ekki hræddir um líf ykkar?“

Steingrímur felur sig í hettu sinni
Stein­grímur felur sig í hettu sinni

Einn hataðasti maður Íslands­sögunnar, Stein­grímur Njálsson var alræmdur barna­níðingur sem hlaut sjö dóma fyrir barnaníð en talið er að fórnar­lömb hans hafi verið að minnsta kosti 16 talsins. Þá hlaut hann tugi dóma vegna líkams­árása, fjársvika, þjófnað og fleira. Upp úr 2004 átti hann ekki í nein hús að vernda og bárust reglulega fregnir af því að hann væri sestur að í hinum og þessum bæjar­félögum en hann var hvarvetna hrakinn á brott. Margoft lenti hann í barsmíðum en árið 2013 lést hann á Land­spítalanum úr krabba­meini, 71 árs að aldri. Aðeins þrjár manneskjur voru við jarðarför Steingríms, tveir prestar og eiginkona gamals vinar hans.

Fræg ljós­mynd af Stein­grími sem DV birt undir orð­unum: Svona lítur hann út.

Hér fyrir neðan má sjá frétt af einum af dómum Steingríms en þá hafði hann lokkað ungan blaðburðar­dreng í íbúð sína og misnotað hann hrotta­lega í marga klukku­tíma. Hlaut hann fyrir það þriggja ára fangelsi.

Kynferðis­glæpur í Sakadómi Reykja­víkur:

Stein­grímur Njálsson dæmdur í þriggja ára fangelsi

Kynferðis­afbrota­maðurinn Stein­grímur Njálsson var í gærmorgun dæmdur í þriggja ára fangelsi og gert að greiða fómarlambi sínu, ungum blaðburðar­dreng er hann svívirti kynferðis­lega, 300 þúsund króna skaða­bætur. Dóminn kvað upp Pétur Guðgeirsson saka­dómari.
Upphaf málsins er það að fyrir tæpu ári lokkaði Stein­grímur Njálsson blaðburðar­drenginn inn í íbúð sína í nágrenni Land­spítalans, réðist þar á hann og kom fram óeðli sínu. Drengurinn komst heim til foreldra sinna við illan leik og kærðu þeir Steingrím
umsvifa­laust.
Stein­grímur Njálsson á að baki langan afbrota­feril og hefur hlotið 23
refsidóma fyrir kynferðis­afbrot, líkams­árásir, þjófnaði, fjársvik og fleira.
Er samanlögð refsivist hans orðin tæp tíu ár.

Í dómnum er kveðinn var upp í Sakadómi í gærmorgun er afbrota­saga
Steingríms Njáls­sonar rakin að hluta. Þar segir meðal annars:
„Með dómi sakadóms Gullbringuog Kjósar­sýslu 11. nóvember 1963 var ákærði m.a. sakfelldur fyrir að fleka 11 ára dreng upp í bifreið, að girða niður um hann og að slá drenginn í andlitið þegar hann veitti mótspymu… Með sama dómi var ákærðursakfelldur fyrir að fleka annan 11 ára dreng upp í bifreið til sín, girða niður um hann og hafa kynferð-
ismök við hann nauðugan.. .Með sama dómi var ákærði sakfelldur fyrir að fleka 10 ára dreng upp í bifreið sína og hafa við hann kynferðismök nauðugan… Þá var ákærði með þessum sama dómi sakfelldur fyrir að fleka 12 ára dreng upp í bifreið sína og hafa við hann kynferðismök nauðugan… Enn var ákærði með þessum sama dómi sakfelldur fyrir að fleka tvo unga drengi, 11 og 13 ára, inn á Hafnar­salernið í Keflavík á árunum 1961-1963, og hafa við þá kynferðismök… Með dómi sakadóms Hafnar­fjarðar 2. október 1978 var ákærði sakfelldur fyrir að fleka 9 ára dreng upp í bifreið og hafa við hann nauðugan samræðismök … Með sama dómi var ákærði sakfelldur fyrir að tæla 12 ára dreng inn á hótel­herbergi til sín og hafa þar við hann kynferðismok nauðugan… Með dómi sakadóms Reykja­víkur
5. september 1986 var ákærði sakfelldur fyrir að þukla á 10 ára dreng á lostugan hátt og kyssa hann á andlitið á veitinga­stofu… Með sama dómi var ákærði sakfelldur fyrir að veitast að 13 ára dreng í búnings­klefa Sund­hallarinnar í Reykjavík og fara höndum
um líkama hans og kyssa hann… Samkvæmt því sem hér hefur verið rakið hefur ákærði áður verið sakfelldur fyrir kynferðis­afbrot gegn 11 ungum, varnar­lausum drengjum, flest
stórfelld brot og til þess fallinn að valda drengjunum varanlegu meini.“

Svala Thorlacius, lögmaður blaðburðar­drengsins, setti á liðnu hausti fram kröfu um að Stein­grímur Njálsson yrði látin gangast undir afkynjunar­aðgerð í ljósi afbota­ferils síns.
Ríkis­saksóknari vísaði þeirri kröfu á bug.
„Ég er ósköp feginn að dómur sé fallinn í þessu máli. Miðað við fyrri dóma í málum sem þessum bjóst ég eins við að dómurinn yrði vægari,“ sagði faðir blaðburðar­drengsins í samtali við DV í gær. Stein­grímur Njálsson og lögmaður hans, Ragnar Aðal­steinsson, lýstu því yfir í sakadómi í gærmorgun að þeir hygðust áfrýja dómnum til Hæstaréttar. -EIR

Er Stein­grímur mætti til réttarins hótaði hann blaða­mönnum DV lífláti. DV sagði auðvitað frá því í sama blaði og textinn hér að ofan er úr.

Morðhótun í Sakadómi

Stein­grímur Njálsson kynferðis­afbrota­maður hótaði frétta­mönnum DV lífláti er hann gekk í
dómssal Sakadóms f gærmorgun. Fjölmörg vitni voru að hótun Steingríms er hann lét eftir­farandi orð falla: „Það kemur að því að ég slepp út. Eruð þið ekki hræddir um líf
ykkar?“ -EIR

Baksýnis­spegill þess birtist fyrst 29 apríl á þessu ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Þorðu ekki að vera heima og fluttu sjö sinnum
Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Þá var einnig tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna