Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Harðar deilur um sniðgöngu íslenskra vara

„Nánast borgaraleg skylda okkar að sniðganga þau“

Takast á um sniðgöngu á íslenskum vörum og stöðu stjórnmálanna
Takast á um snið­göngu á íslenskum vörum og stöðu stjórn­mál­anna Mynd: Facebook/Klemens Olafur Thrastarson

Vegið að „útflutnings­elítunni“ og stjórnmála­menningu líkt við MAGA-hreyfinguna

Snarpar deilur hafa skapast innan hóps jásinna á samfélags­miðlum um það hvort grípa eigi til sniðgöngu á íslenskum vörum í kjölfar nýafstaðinna atburða. Klemens Ólafur Þrastarson, sem um árabil starfaði sem pólitískur ráðgjafi sendi­herra Evrópu­sambandsins á Íslandi og Hekla Rán Kristjáns­dóttir takast á um áhrifa­mátt neytenda­valdsins og þá þróun sem orðið hefur á íslenskri stjórnmála­menningu.

Borgaraleg skylda að sýna andstöðu

Klemens Ólafur Þrastarson lýsir því yfir í opinberri færslu inni í hópnum Brúin til Evrópu - Samtal um ESB o.fl. að hann telji það nánast „borgara­lega skyldu“ almennings að sýna hagsmuna­samtökum atvinnu­lífsins skýra mótspyrnu. Vísar hann þar sérstak­lega til Bænda­samtakanna, Samtaka fyrir­tækja í sjávar­útvegi (SFS), Samtaka atvinnu­lífsins (SA) og þess sem hann kallar „útflutnings­elítuna“.

Klemens sakar þessa aðila um að hafa „logið yfir okkur áfram­haldandi óréttlæti“ og telur að almenningur verði að bregðast við. „Einfaldasta leiðin er að kaupa ekki vörur af þeim og kjósa rétt,“ segir Klemens, en tekur fram að honum sé „síður en svo kappsmál að sniðganga fátæka bændur.“ Hann lýsir jafnframt eftir betri hugmyndum til að koma skila­boðunum á framfæri.

Umfangið of víðtækt og Íslendingar óduglegir að sniðganga

Hekla Rán Kristjáns­dóttir bendir á í athugasemd við færsluna að vanda­málið sé mun stærra og flóknara ef ráðast á í sniðgöngu. Hún bendir á að ekki sé hægt að skella öllum bændum undir sama hatt þar sem ekki allir hafi verið á sama máli.

Ef fara ætti út í raun­verulega sniðgöngu þyrfti hún að vera mun víðtækari og ná til stórra útgerðar­fyrirtækja á borð við Samherja, Síldar­vinnsluna, Ísfélagið og Þorbjörn, auk Kaup­félags Skagfirðinga og verslunar­keðja. Hún nefnir sem dæmi að hún reyni sjálf að kaupa vörur frá Örnu í stað Mjólkur­samsölunnar (MS) eftir að sú síðarnefnda varð uppvís að brotum á samkeppnis­lögum.

Hún dregur hins vegar efni í efa að slíkt skili árangri hér á landi. „Við Íslendingar höfum seint verið dugleg að taka okkur saman í að mótmæla á svona hátt með því að sniðganga ákveðnar vörur,“ segir Hekla Rán.

Áhyggjur af „MAGA-hreyfingu“ á Íslandi

Hekla Rán dregur einnig upp stærra samhengi og lýsir furðu sinni á því hvernig stjórn­völd fylgi sumum þjóðar­atkvæða­greiðslum eftir en öðrum ekki, og vísar þar til þjóðar­atkvæða­greiðslunnar um nýju stjórnar­skrána sem stærsti hluti þjóðarinnar vildi fá en var aldrei lögfest.

Hún lýsir yfir þungum áhyggjum af þróun mála á Íslandi og segir niður­stöðuna nú litast af hræðslu­áróðri og lygum. „Sorglegt að við erum komin þangað sem þjóð að það er ekki farið lengur eftir rökum sem vitna í sannleika og það er í staðinn komin ákveðin MAGA hreyfing hér á landi sem er mjög ómálefnaleg,“ segir Hekla Rán að lokum og spyr hvernig hægt sé að koma í veg fyrir slíka þróun í fram­tíðinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim