Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Koðnaði kokkállinn niður við skapahárin?: Nýjasti hlaðvarpsþáttur Jóns Sigurðar væntanlegur í kvöld

Í hugum margra er Viktoríu­tíminn tímabil háttsemis og prúð­mennsku. Það þýðir þó ekki að aldrei hafi kynlífs­skandalar og ástar­erjur skekið alþjóð einsog nú á tímum samfélags­miðla. Eitt magnaðasta málið af þessum toga skók Bretland árið 1855.  Upphaf þess má rekja til þess þegar fyrirsætan Effie Gray fór í ferðalag til Skotlands með eigin­manni sínum, hinum virta rithöfundi, heim­spekingi og list­gagnrýnanda John Ruskin. Með í för var félagi hans, mynd­lista­maðurinn frægi, John Everett Millais sem nýtti þessa ferð meðal annars til að mála mynd af nafna sínum við á eina á hálendi Skotlands. Svo óheppilega vildi til að Effie Gray varð ástfangin af málaranum og ekki gat hann staðist þá strauma sem frá henni stóðu. Skömmu eftir að hjóna­kornin komu heim til Lundúna sagðist Effie þurfa að heimsækja forlendra sína og nýtti hún þá tækifærið og skildi giftinga­hring sinn eftir ásamt skila­boðum þess lútandi að hún vildi skilnað, en ekki var hlaupið að slíku á þessum árum. Hún hafði hinsvegar góða ástæðu til því hún var enn hrein mey eftir sex ára hjónaband og hafði yfir­valdið skilning á kröfu hennar svo málið gekk í gegn. Einsog gefur að skilja olli þetta miklu umtali og margir spurðu hví eigin­maðurinn skildi ekki hafa notið þeirrar dýrðar sem bauðst honum heima við en Effie var af flestum talin hin þokka­fyllsta frú. Útskýringar hans urðu heldur ekki til þess að draga úr getgátum en hann sagði eitthvað á þá leið að þó konan væri vissulega snoppu­fríð þá voru þar hlutir í hennar fari sem fældu hann frá því að hafa við hana samfarir. Mikið hefur verið rætt og skrifað um hvað það gæti verið, sem virkaði svo letjandi á hann, og hefur því til dæmis verið varpað fram, og þá vitnað í Effie sjálfa, um að hann hafi haft allt aðrar hugmyndir um líkama kvenna áður en hann komst loks í tæri við hann. Og eiga skapa­hárin að hafa valdið honum miklum vonbrigðum og vissum viðbjóði. Kaus hann þá heldur líkama þá sem mynd­listasagan bauð uppá þar sem ekki vottaði fyrir hárum við kynfærin.

Hvað sem því líður þá bar mörgum saman um að Ruskin hafi komið illa fram við konu sína. Var það því mikill og kærkominn viðsnúningur þegar hún giftist mynd­lista­manninum Millais árið 1855. Þar stóðu skapahárinn ekki í vegi fyrir samgangi og eignuðust þau ein átta börn. 

Áður en þau rugluðu saman reitum höfðu þau reyndar unnið saman og í fyrstu mynd Millais, þar sem Effie Gray situr fyrir, kemur annar kynlífs­skandall við sögu. Myndin ber heitið Lausnar­skipun 1746 (Order of Release 1746) en þar er eiginkona að rétta varðmanni bréf þar sem staðfest er lausn eigin­manns hennar úr fangelsi en hann faðmar hana særður og illa farinn. Látið er að því liggja að hún hafi þurft að borga frelsi eigin­mannsins með blíðu sinni. 

Í þætti sínum Rúntað á Rucio kemur þetta fólk mikið við sögu en þar segir Jón Sigurður frá öðru málverki Johns Everett Millais. Það heitir Ófelía og er viðfangesefnið fengið úr leik­ritinu Hamlet eftir sjálfan William Shakespeare og sýnir samnefnda unnustu prinsins drukkna í hyl nokkrum. Myndband sem Nick Cave gerði við lag sitt Where The Wild Roses Grow minnir um margt á þetta verk Millais en á bakvið það leynist sagan af fyrir­sætunni Elísabet Siddal en þá sorgar­sögu segir Jón Sigurður í þættinum. Þátturinn birtist á vef Mannlífs síðar í kvöld.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim