Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

„Sé ég að sumir bregðast bálreiðir við orðum Agnesar biskups – fastir liðir eins og venjulega“

Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur.
Guð­mundur Andri Thorsson rit­höf­undur.

Rithöfundurinn Guðmundur Andri Thorsson fjallar um ræðu biskups sem sagði á dögunum að á Íslandi væri þöggun í gangi í varðandi Guð almáttugan og að ekki sé vinsælt að nefna hann.

„Það er kona að reyna að lesa úr Lúkasar­guðspjalli í útvarpinu en gengur á með eilífum truflunum. Veit ekki hvort þetta er tækið eða móttöku­skilyrði guðs kristni í landinu, hallast að því síðarnefnda; engar truflanir núna þegar fagnaðar­erindi markaðs­hyggjunnar hljómar í auglýsingunum. Ég var annars ánægður með jóla­predikun séra Elínborgar Sturlu­dóttur í jóla­messunni á aðfangadags­kvöld, bæði inntakið og flutninginn og ég raulaði milli­raddirnar í sálmunum svona eins og þvi varð við komið í því rösklega tempói sem kórinn söng, eins og allir vildu drífa þetta af og flýta sér heim í steikina,“ segir Guðmundur.

„Öllu meiri varð nú trúar­iðkun mín ekki þessa hátíðar­daga, en nú sé ég að sumir bregðast bálreiðir við orðum Agnesar biskups – fastir liðir eins og venjulega þar. Almennt finnst mér að trúmál eigum við að ræða af yfirvegun og virðingu fyrir mann­réttindum. Virðingu fyrir þeim mann­réttindum að búa yfir trúar­sannfæringu um tengingu við almættið, hvernig svo sem það er í laginu – en líka virðingu fyrir  tjáningar­frelsi. skoðana­frelsi, kynfrelsi og frelsi til að klæða sig að vild og vera sá/sú/það sem maður telur sig vera. Frelsi til að óhlýðnast og frelsi til að fara ekki að fyrir­skipuðum siðum.“

Guðmundur Andri segir að þó Agnesi hafi á réttu að standa hvað þetta varðar þá þýði það ekki að prestar geti ætlast til þess að þeir muni endur­heimta ítök sín:

„Ef foringi kristinna manna á Íslandi segir að fólk veigri sér við að játa trú sina í opinberu rými af ótta við aðkast og smánun þá getum við ekki bara afgreitt það sem einhverja vitleysu og brugðist við með einhverju láttuekkisvona og hættessuvæli heldur þurfum við að taka þessa umkvörtun alvarlega og líta í eigin barm og hugleiða hvort okkur hætti til að smána fólk fyrir að vera kristið. En foringi kristinna manna á á Íslandi þarf líka að gera sér grein fyrir því að sá tími er liðinn að prestar og kirkjunnar þjónar eigi greiða leið að heilabúum barnanna með biblíu­sögurnar sínar og boðskapinn sem í þeim felst.  Þannig bara er það og er fullkomlega eðlilegt í sekúlaríseruðu samfélagi. Sjálfur ætla ég að ræskja mig og segja svo bráðum „na na na“ og komast að því hvort ég sé enn með Wandering-star-röddina mína og svo ætla ég að ganga út á vit höfuð­skepnanna og himinsins og hafsins. Allt er þetta spölkorn frá mér þar sem ég sit hér við eldhús­borðið. Það er nokkurs virði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

„Ég er búin að fá svo margar fallegar kveðjur og sendingar“
Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Innlent

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Halla Tómasdóttir segir að margir karlar glími við einmanaleika og óvissu um hlutverk sitt í samfélaginu.

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja