Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Meintur rasisti laug um hópárás innflytjenda: „Kom halarunan af þessum Asíubúum hlaupandi út“

Veitingastaðurinn Gullið en slagsmálin fóru fram yfir utan staðinn
Veit­inga­stað­ur­inn Gullið en slags­málin fóru fram yfir utan stað­inn

 Hópárás innflytjenda í miðbæ Reykja­víkur reyndist vera lygi.

„Ég er fyrst og fremst eftir mig andlega og reiður út af þessu,“ sagði Birgir Rúnarsson í samtali við Morgun­póstinn árið 1994. Þá hélt hann því fram að 20 einstaklingar hefðu ráðist á sig og unnustu hans. Hann tók sérstak­lega fram að um asískt fólk væri ræða. Átökin hafi byrjað þegar tælenskur maður hafi byrjað að abbast upp á sig.

„Hann var að snapa sér slagsmál eins og stundum gerist. Fyrst gerði ég ekki neitt en þegar hann byrjaði að kýla mig reyndi ég að verja mig, en ég vildi ekki standa í neinu veseni. Síðan kom félagi hans og argaði eitthvað á óskiljanlegu tungumáli. Hinn Tælendingurinn svaraði og þá tók félaginn á rás beint inn á Gullið en þetta gerðist þar beint fyrir utan. Og áður en ég vissi af kom halarunan af þessum Asíubúum hlaupandi út og rignir yfir mig og ég laminn og sparkað í mig. Ég reyndi að komast á fætur til að hjálpa kærustunni minni, sem þeir réðust líka á, en það gekk ekki. Loksins þegar ég var að komast á fætur, kom einn þeirra og sparkaði framan í mig með þeim afleiðingum að ég nefbrotnaði. Þegar ég stóð loksins upp sá ég bara hóp af Tælendingum sem öskruðu eitthvað sem ég skildi ekki. Þetta fólk ber ekki meiri virðingu fyrir landinu en það að það vill ekki læra tungu­málið.“

Birgir sagði að bæði unnusta hans og hann sjálfur hafi slasast í slags­málunum.

„Kærastan mín er tognuð bæði á baki og á hálsi, með gat á höfðinu og öll blá og marin á líkamanum. Sjálfur er ég með glóðar­auga báðum megin og brákaður á tveimur liðum á annarri hendinni.“

Bróðir unnustu Birgis var skammt undan ásamt nokkrum vinum og kom þeim til aðstoðar og samkvæmt þeim voru árásar­mennirnir vopnaðir.

„Vinur sem ætlaði að koma okkur til hjálpar sagði við mig að hann hefði séð hnúajárn, einn með hníf og svo var hann að tala um einhverja rörbúta. Ég get ekki staðfest þetta sjálfur þar sem ég sá þetta ekki og ég hef ekki ennþá náð í þennan mann til að fá stað­festingu,“ sagði Birgir.

Lögreglan ósammála

Lögreglan og vitni voru þó talsvert ósammála Birgi um málið. Karl Hjartarson, lögreglu­maður, var á staðnum og sagði allt aðra sögu en Birgir.

„Ég bara gapti þegar ég sá að þetta var orðið stórmál. Í DV er talað um vopnaburð og mönnum hafi verið ógnað með hnífum, hnúa­járnum og öðrum tólum. Það var ekki minnst einu orði á þetta við okkur um nóttina. Upphaf­lega kemur til okkar vegfarandi sem segir okkur að þarna sé krúnu­rakaður piltur í hermanna­jakka sem hafi verið með hníf. Við tókum hann inn í bíl og það kom í ljós að hann var með svona lítinn, rauðan hníf, svokallaðan Sviss Army knife, í vasanum en hvort hann hafi verið eitthvað að sveifla honum er ekki nokkur leið að henda reiður á. En þessi drengur var ramm­íslenskur og við höldum að hann hafi ekkert blandast í þessar stympingar. Ætli þetta hafi ekki allt í allt verið 15 til 20 manns, innfæddir og nýbúar, sem voru að stympast þarna. Við tókum tvo Tælendinga inn í bíl og einn sem var eitthvað að blanda sér í það mál fékk að fljóta með. Síðan var rætt við þetta par sem hafði verið í þessum pústrum og þá kom ekkert fram um neinn vopnaburð. Þessi frétt í DV á ekkert skylt við þetta mál sem átti sér stað aðfara­nótt sunnu­dagsins.“

Í upphaflegri frétt DV sagði Birgir frá því að hann hafi verið laminn í lögreglubíl af tveimur tælenskum mönnum meðan það var verið að færa þá á lögreglunastöðina.

„Þessi klásúla að þeir hafi verið að slást inni í bíl er alveg af og frá. Það var lögreglu­maður aftur í bíl hjá þeim og ræddi við þá í mesta bróðerni,” sagði Karl um það og sagði að lögreglan þyrfti mjög sjaldan þurft að hafa afskipti af innflytjendum.

„Það er sárasjaldan sem við höfum þurft að hafa afskipti af nýbúum í miðbænum. Við höfum ekki nokkurn skapaðan hlut við þetta fólk að athuga.“

Vitni töldu Birgir vera rasista

Haraldur Jónsson, veitinga­maður á Gullinu, var vitni að slags­málum en þau áttu sér stað fyrir utan Gullið. Hann sagði Birgir fara með rangt mál varðandi fjölda einstaklinga sem tóku þátt í slags­málunum.

„Að þau hafi verið tuttugu er fjarri öllu lagi, ég giska á að hópurinn hafi verið öðru hvoru megin við tuginn,“ sagði Haraldur og tók fram að þessi hópur hefði sótt Gullið undan­farnar helgar og hann hefði ekkert nema gott að segja um hópinn.

„Þetta fólk hefur komið á staðinn um helgar undan­farna mánuði og ég hef ekki orðið var við nein vandræði af þeirra völdum. Einu óþægindin í kringum þessi grey eru að Íslendingarnir láta illa við þau. Við höfum margoft þurft að vísa mönnum á dyr vegna þess að þeir hafa verið að angra þau. Þeim er leyft að flytja til landsins en síðan fá þau engan frið.“

Haraldur vill meina að slags­málin hafi byrjað út frá kynþátta­fordómum og hann hafi ekki séð nein vopn notuð.

„Eins og þetta leit út frá okkur, án þess að ég geti fulllyrt neitt, byrjaði þetta í kringum eina tælensku stelpuna. Það er alltaf verið að kallað eitthvað á þessi grey og þarna byrjaði einhver hasar. Við sáum að það var verið að ýta við þessari stelpu og síðan braust þetta út.“

Birgir var spurður út í hvort Haraldur fari með rétt mál.

„Það er ekki rétt, það er einfalt mál. Ég hafði enga ástæðu til þess. Hann gekk á mig og byrjaði þetta og ég var bara að reyna að verja mig. Ég var á leiðinni heim. Ef ég hefði byrjað þetta væri ég ekki í mála­ferlum eða að flagga þessu á þennan hátt.“.

Þá vildi Birgir ekki láta taka myndir af sér eða áverkum til sönnunar.

„Ég vil ekki fá skrúfjárn eða hníf í bakið einhvern tímann þegar ég er að skemmta mér í fram­tíðinni.“. 

Íslendingunum að kenna

Í vikunni á eftir var svo tekið viðtal við Grím Grímsson sem var vitni að málinu. Hann sagði Birgi hafa verið að ljúga.

„Það sem ég sá var að allstór hópur Íslendinga veittist að fáeinum einstaklingum af asískum uppruna sem máttu sín lítils og voru all hart leiknir. Sú atburðarás sem lýst er í DV af þessu atviki kemur vægast sagt illa heim og saman við það sem ég sá,“ sagði Grímur. „Ætli það hafi ekki verið fimm tælenskir strákar og þrjár eða fjórar tælenskar stelpur sem voru þarna saman og Íslendingarnir veittust að. Þetta var ekki neitt svakalegt, en einhverjir pústrar gengu þó þarna á milli. En eina blóðið sem ég sá var á andliti eins Tælendingsins.“

Grímur endaði á að segja að Birgir væri líklega rasisti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Slysið varð aðfaranótt sunnudags á blautum vegi við Flúðir.
Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Mannlífið

Myndir

Novasvellið rís á Ingólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga

Opnunar­veisla Bryggju­hússins að hefjast

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegrunar­aðgerðir

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setningu?

Bæjar­hátíðin Í túninu heima stendur með miklum blóma í Mosfellsbæ

Bangsa­félagið heldur upp á afmæli með stórhátíð og nýrri keppni