Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Anna rifjar upp Ásmundarsmyglið 1967: „Hvar menn voru dæmdir í tiltölulega stutta fangelsisvist“

Anna Kristjáns­dóttir er að undirbúa Íslands­heimsókn frá Tenerife eins og lesa má í nýjustu dagbókar­færslu hennar á Facebook. Þar rifjar hún einnig upp Ásmundar­smyglið árið 1967.

Eins og alþjóð veit hefur Anna haldið úti dagbók síðan hún flutti til Tenerife fyrir nokkrum árum. Færslurnar eru þekktar fyrir húmor og kaldhæðni. Nýjasta færslan er tvískipt. Í fyrri hlutanum segir hún frá samskiptum sínum við systur sína sem hún segir að sé ágæt en þurfi að læra mannleg samskipti. Í seinni hlutanum rifjar hún upp Ásmundar­smyglið svokallaða frá árinu 1967 sem á þeim tíma var eitt stærsta smygl Íslands­sögunnar.

Færsluna má lesa hér:

„Dagur 1359 – Dagur í Paradís.

Ég átti góðan dag í Paradís i gær. Ónefnd kona frá Vestmanna­eyjum dvelur hér og reyndi að njóta lífsins á sund­laugar­bakkanum á milli þess sem hún hvíldi sig í herberginu hennar Kristrúnar frænku minnar. Við fórum samt saman í Mercadona og í Sketchers. Svo var flatbaka etin á Rimini áður en við héldum á Búkkann. Semsagt, flottur dagur í Paradís. Ég reyndi samt ekkert við hana enda er hún lofuð auk þess sem ég á vinkonu á suðrænum slóðum, en ekki orð um það meir.Ég var reið Lilju systur þegar hún vildi ekki skila mér ferða­töskunni minni fyrr en síðar, en ég þarf að nota töskuna á laugardag þegar ég held norður á bóginn. Þegar mér tókst loksins að ná sambandi við Lilju lét ég hana heyra það. Ég ætlaði svo sannarlega ekki að gera eins og hún og byrja að pakka hálftíma fyrir flugtak frá Tenerife og heimtaði mína tösku. Þegar ég kom heim af Búkkanum um kvöldið beið taskan mín á húsbarnum, en henni hafði verið skilað þangað úr því ég var ekki heima. Lilja systir er ágæt samt, en þarf að læra á klukku og síma og umfram allt á mannleg samskipti.—–Um daginn var ítarleg grein í Morgun­blaðinu um Ásmundar­smyglið árið 1967, að mörgu leyti góð grein sem varpaði aðeins ljósi á málið, en ég sá hvergi í greininni endanlegar niður­stöður málsins eftir að dómur hafði fallið í Hæstarétti haustið 1968 hvar menn voru dæmdir í tiltölu­lega stutta fangelsis­vist og báturinn gerður upptækur til ríkis­sjóðs, enda var það í anda laganna að ef megin­hluti farms var smygl­varningur, bar að gera farið upptækt. Dómurinn var einmitt á þá leið. Eigandi bátsins missti þar með bátinn til ríkis­sjóðs þótt hann væri alsaklaus og hafði leigt bátinn til ufsaveiða, en ekki til séneversveiða í Belgíu.Daginn eftir að dómur féll í Hæstarétti náðaði forseti Íslands eigandann og því hélt hann bátnum, en seldi hann fljótlega. Í þessu tilfelli var nýlega kjörinn forseti Íslands Kristján Eldjárn.Mörgum árum síðar vorum við á Bakka­fossi II í höfn í Harbour Grace á Nýfunda­landi og hittum þar fyrir einn fimmenninganna sem höfðu verið á Ásmundi í umræddri smyglferð og sá hafði greini­lega ekkert lært og bauðst til að kenna okkur að smygla. Þá hló Ragnar Valdimarsson sem leysti af sem skip­stjóri þessa ferð og sagði við við manninn: „Ég held að þú getir ekki kennt okkur neitt, þú sem varst tekinn fyrir stærsta smygl Íslands­sögunnar“.Best að taka fram að það var smyglað einungis áfengi og tóbaki og hátolluðum vörum í samkeppni við ríkissjóð til að bæta upp léleg laun sem löngum voru á skipunum. Ólögleg fíkniefni voru aldrei inni í myndinni hjá langflestum eða nær öllum auk þess sem tilraunir til slíks voru brottrekstrarsök af skipunum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt