Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

KÖNNUN – Sjáðu hvað íslensku þjóðinni finnst raunverulega um Íslendingasögurnar

Á samfélags­miðlinum Twitter fer nú fram áhugaverð umræða og kosning meðal íslenskra netverja um hvort þeim hafi þótt gaman að því að lesa og læra um Íslendinga­sögurnar. Það er Siggeir nokkur sem óskar eftir atkvæðunum og býður hann kjósendum jafnframt upp á að útskýra atkvæði sitt. Spurning Siggeirs er einföld:

„Fannst ein­hverjum gaman að lesa og læra um Íslend­ing­ar­sög­urnar í grunn­skóla?“

Og hann ríður sjálfur á vaðið með skoðun sína: „Fyrir utan dönsku þá eru þetta mínar verstu náms­minningar úr grunn­skóla. Og mér fannst mjög gaman í skóla og stóð mig heilt yfir vel, en ég náði aldrei neinni tengingu við þetta efni. Ég velti því fyrir mér hvort það sé betur geymt til seinni mennta­stiga,“ veltir Siggeir fyrir sér.

Þjóðin hefur sagt hug sinn en 220 atkvæði bárust í könnunina. Þetta eru niður­stöður hinnar óformlegu skoðana­könnun Siggeirs:

Já

39,5 prósent

Nei

41 prósent

Bæði og

19,5 prósent

Hér koma nokkur dæmi um það sem íslenska þjóðin hefur að segja um Íslendinga­sögurnar:

Klárt nei, kennslan var svo þurr og óspennandi. Gaman að lesa sögurnar, en kennarnir náðu engan veginn að gera námsefnið spennandi eða áhugavert. Held þeim hafi sjálfum leiðst mest í tímunum.

Sagði já, fannst ekki gaman að lesa þær en kennarinn fór yfir sögurnar og þær urðu skemmtilegar og lifandi í meðförum hennar

Alls ekki, en eftirá að hyggja er það klárlega kennslu­aðferðirnar og miðlun frá kennara. Ég gerði þess vegna í því, þegar ég kenndi Kjalnesingasögu í fyrra, að leiklesa fyrir og með nemendum mínum og reyna að tengja þetta á einhvern hátt við þeirra raun­veruleika.

Mér fannst þetta skemmtilegt. Held það hafi mikið haft að gera með að kennarinn var góður og útskýrði vel. En ég var svosum barnið sem las þjóðsögu­bindin mér til skemmtunar

Sko já og nei. Ein var kennd af kennara sem gat ekki verið meira sama þó við skildum ekki neitt. Leiðinlegt.Önnur var leiklesin, notuð dæmi úr nútímanum og útskýrð á mjög skemmtilegan hátt. Skemmtileg.

Nei alls ekki gaman. Eiginlega algert drep sko. Hef svo lesið þær eitthvað eftir að ég varð fulloðin og þær eru enn drep­leiðinlegar

Það var miserfitt en Njála var verst, að þurfa að læra allskonar ættar­tengsl f próf og græða ekkert á því. 10 árum síðar er ég að kenna hana sem er mikið betra, gaman að benda á þurru, hæðnu brand­arana sem sýna svo vel íslenskan húmor og þjóðarsál + get fókuserað á það mikilvæga.

Nei – ég náði engu sambandi við þetta efni og við það situr enn í dag. Fannst aftur á móti gaman í dönsku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“