Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Skoðun

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Steinar Jóhann Lúðvíksson er látinn

Steinar Jóhann Lúð­víks­son, rit­höf­undur og blaða­maður, er lát­inn, 84 ára að aldri. Hann lést á lungna­deild Land­spít­al­ans 2. apríl síð­ast­lið­inn. Frá and­lát­inu greindi Mbl.is.

Steinar fædd­ist 30. sept­em­ber árið 1941 í Vestur-Húna­vatns­sýslu en átti mestan hluta ævi sinnar heima í Garðabæ. For­eldrar hans voru Lúðvík Jóhann­es­son og Ingi­björg Bene­dikts­dóttir.

Hann útskrif­að­ist frá Kenn­ara­skóla Íslands árið 1965 og hóf þá störf á Morg­un­blað­inu, þar sem hann starf­aði sem blaða­maður til árs­ins 1977. Að því loknu tók hann við rit­stjóra­starfi hjá Frjálsu fram­taki hf. og síðar gegndi hann stöðu útgáfu­stjóra hjá Erni og Örlygi. Frá árinu 1983 og fram til 2006 var hann aðal­rit­stjóri Frjáls fram­taks.

Steinar var virkur í starfi íþrótta­hreyf­ing­ar­innar og gegndi þar ýmsum trún­að­ar­störfum. Hann var meðal ann­ars for­maður Samtaka íþrótta­f­rétta­manna um tíma og telst til frum­kvöðla í íþrótta­f­rétta­mennsku á Íslandi. Þá var hann ötull stuðn­ings­maður Stjörn­unnar í Garðabæ, sat í stjórn félags­ins og skrif­aði sögu þess. Einnig var hann vara­for­maður Hand­knatt­leiks­sam­bands Íslands og átti sæti í stjórn Afreks­manna­sjóðs ÍSÍ.

Rit­höf­und­ar­fer­ill hans var afar umfangs­mik­ill og spann­aði nær sex ára­tugi. Hann gaf út tæp­lega 60 bækur á árunum 1965 til 2024. Þar ber hæst umfangs­mikið rit­verk um björg­unar- og sjó­slysa­sögu Íslands, Þraut­góðir á rauna­stund, sem kom út í 20 bindum, auk Sögu Garða­bæjar í fjórum bindum. Þá skrif­aði hann fjölda bóka um íþróttir og sögu þeirra á Íslandi.

Fyrir störf sín á sviði blaða­mennsku og sagna­rit­unar hlaut Steinar ridd­ara­kross hinnar íslensku fálka­orðu árið 2018.

Steinar kvænt­ist Gull­veigu T. Sæmunds­dóttur árið 1966. Þau eign­uð­ust tvö börn, Lúðvík Örn og Ingi­björgu Hrund, sem lést ung að aldri. Barna­börn þeirra eru þrjú.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Býður Trump að nefna heil­brigð­is­kerfi eftir sér

Abdul El-Sayed segist tilbúinn að láta forsetann fá heiðurinn af opinberu heilbrigðiskerfi, styðji hann að allir Bandaríkjamenn fái aðgang að þjónustu.
Heimur

Robert Patt­in­son næsti James Bond

Pólitík

Segir Hildi Björns­dóttur beita tvö­földum mæli­kvarða á fjár­mál borg­ar­innar

Heimur

Brand óskaði eftir auka­teppi og sér­sjampói í fang­els­inu

Pólitík

Sig­mundur sak­aði rík­is­stjórn­ina um „dára­skap“ og Kristrún svar­aði fullum hálsi

Minning

Minning

Guðjón Þórð­ar­son er fall­inn frá

Er einn þekktasti og sigursælasti þjálfari í sögu Íslands
Minning

Gunnar Þór­ar­ins­son fyrr­ver­andi bæj­ar­full­trúi lát­inn

Minning

Borgþór Vest­fjörð Kjærne­sted er fall­inn frá

Minning

„Og nú er hann flog­inn á braut í morg­un­birt­unni, dáinn, horf­inn, harma­fregn“

Minning

Mörður Árnason er fall­inn frá