Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Bjargaði eldri hjónum frá drukknun í Bláa Lóninu: „Bjóðumst til að lána fólki kúta“

Bláa lónið Myndin tengist ekki fréttinni beint.
Bláa lónið Myndin teng­ist ekki frétt­inni beint. Mynd: Ralf Roletschek

Jóel Kristinsson bjargaði gömlum hjónum frá drukknum árið 1995.

Ein af hetjum ársins 1995 var Jóel Kristinsson, nemandi við Verzlunarskóla Íslands, en hann bjargaði breskum hjónum frá drukknun í Bláa lóninu. Hann var starfs­maður Bláa Lónsins á þeim tíma ásamt því að vera nemandi. Morgun­pósturinn fjallaði ítarlega um málið á sínum tíma.

„Ég var á vakt í kennara­verkfallinu og það er í raun gott að kennarar voru í verkfalli, annars hefði getað farið verr fyrir gömlu hjónunum en það gerði. Ég og farar­stjórinn urðum varir við að þau voru að busla. Hann stoppaði á bryggjunni en ég fór út í. Þetta voru Bretar, gömul hjón og ósynd bæði. Ég fór með manninum inn í sturtu­klefann en hann var dálitla stund að jafna sig og hóstaði mikið. Ég hafði áhyggjur, því mér var sagt að hann vœri með hjarta­galla og hann andaði mjög slitrótt. Eftir á tók hann í höndina á mér og þakkaði mér fyrir. Þetta er í þriðja skipti sem ég lendi í því að bjarga fólki. Pabbi hrósar mér mjög mikið þegar það gerist en ég fæ borgað fyrir þetta og starfið er mjög skemmtilegt og ég hef farið á námskeið í skyndi­hjálp. Í fyrsta skipti voru það tveir Kanar, konan ósynd og maðurinn var með hana á bakinu. Ég heyrði öskur og þá kom í Ijós að maðurinn var kominn í kaf og konan var buslandi á bakinu að reyna að halda höfðinu upp úr vatninu. Einu sinni var það lítið barn sem hafði dottið fram af bryggjunni. Þetta eru oft útlendingar sem lenda í svona, fólk sem er að milli­lenda og stoppar í nokkra tíma og fer þá í Bláa lónið,“ sagði Jóel í samtali við Morgun­póstinn.

Kristinn Benediktsson, rekstrar­stjóri Bláa lóninu, sagði í samtali við Morgun­póstinn að þetta hafi verið töluvert vandamál á staðnum.

 „Við reynum að brýna fyrir fólki að fara ekki lengra út en það ræður við og bjóðumst til að lána fólki kúta til stuðnings ef það kann illa að synda. Við vitum líka til þess að farar­stjórar gera þetta líka við skipulagða hópa sem hingað koma. En það erfiðasta er kannski að fólk vill ógjarnan láta það uppi ef það kann ekki að synda. Nú er búið að koma upp flotholts­girðingum þannig að fólk getur haldið sig í námunda við það og einnig hangir uppi aðvörunar­spjald af manni sem er að drukkna og baðar út öllum öngum. Það verður kannski aldrei komið algerlega í veg fyrir óhöpp, sumir ana bara í vitleysis­gangi lengra en þeir ráða við. En vonandi dregur úr þessu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Slysið varð aðfaranótt sunnudags á blautum vegi við Flúðir.
Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Mannlífið

Myndir

Novasvellið rís á Ingólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga

Opnunar­veisla Bryggju­hússins að hefjast

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegrunar­aðgerðir

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setningu?

Bæjar­hátíðin Í túninu heima stendur með miklum blóma í Mosfellsbæ

Bangsa­félagið heldur upp á afmæli með stórhátíð og nýrri keppni