Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Þegar Dorrit flutti lögheimili sitt til Bretlands: „Ég sakna Sámur meira en ég sakna Ólafur“

Mynd. skjáskot/RÚV
Mynd. skjá­skot/RÚV

Sumarið 2013 fékk íslenska þjóðin þær óvæntu fréttir að forsetafrú landsins, Dorrit Moussaieff væri búin að færa lögheimili sitt til Bretlands og það rétt eftir endurkjör Ólafs Ragnars Gríms­sonar.

Dorrit var gagnrýnd fyrir þessa tilfærslu á lögheimili sínu enda verða hjón að hafa sama lögheimili, samkvæmt íslenskum lögum. Sumir töldu hafa fara þennan flutning vegna skatta­mála bæði hér og í Bretlandi en hér var á auðlegðar­skattur. Þvertók Dorrit fyrir það og sagði ástæðuna þá að foreldrar hennar væru orðnir háaldraðir og hún þyrfti að hjálpa þeim með skartgripa­veldið sem þau áttu í Bretlandi.

Frétta­blaðið fjallaði um málið á sínum tíma:

Dorrit búin að flytja lögheimilið úr landi

Lögheimili Dorritar Moussaieff er nú í Bretlandi. Ástæðan er sögð „heimili, störf og fjöl­skylda“ Dorritar í London. Samkvæmt lögum verða hjón að hafa sama lögheimili. Forseta­embættið segir opinberar stofnanir ekki hafa gert athuga­semdir.

Dorrit Moussaieff forsetafrú hefur fært lögheimili sitt til Bretlands og er því ekki lengur skráð til heimilis með Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, á Bessa­stöðum. Flutningar lögheimilis Dorritar frá Bessa­stöðum til Bretlands gengu í gegn í fyrra, án athugasemda frá Þjóðskrá, en samkvæmt íslenskum lögum þurfa hjón að vera skráð á sama lögheimili. Örnólfur Thorsson forseta­ritari segir skráninguna hafa gengið í gegn með venju­bundnum hætti, án athugasemda frá Hagstofu og Þjóðskrá. „Breytingin tengist heimili, störfum og fjöl­skyldu Dorritar í London,“ segir Örnólfur. „Það var engin athugasemd gerð af hálfu opinberra aðila.“ Spurður hvort Dorrit og Ólafur hafi slitið samvistir segir hann svo ekki vera. „Að sjálfsögðu eru þau ekki búin að slíta samvistir og hún verður auðvitað hér á þjóð­hátíðar­daginn.“ Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá þurfa hjón að slíta samvistir til þess að geta haft sitthvort lögheimilið samkvæmt lögum. Margrét Hauks­dóttir, forstjóri Þjóðskrár, segir að fólk þurfi að framvísa stað­festingu á því að það sé búið að slíta samvistir eða sé að skilja að borði og sæng, ætli annað hjónanna að flytja lögheimili sitt. Svoleiðis séu lögin og engar undan­tekningar gerðar á því að undan­skildum þing­mönnum, ráðherrum og starfs­mönnum sendiráða erlendis. Hún geti þó ekki tjáð sig um einstök mál. Greint var frá því í fyrra að Dorrit greiðir ekki auðlegðar­skatt hér á landi, þrátt fyrir að vera búsett hér og gift Íslendingi. Fjöl­skylda hennar er vellauðug og voru foreldrar hennar einir fremstu skartgripa­safnarar heims. Eignir fjöl­skyldunnar eru metnar á tugi milljarða og hefur hún meðal annars ratað á lista Times um auðugustu fjöl­skyldur heims. Bæði forseti Íslands og maki hans greiða skatta og gjöld af tekjum sínum og eru hjón lögum samkvæmt samsköttuð. Dorrit fékk íslenskan ríkis­borgararétt árið 2006, þremur árum eftir að hún giftist Ólafi Ragnari. Dorrit og Ólafur trúlofuðust árið 2000 og giftu sig á afmælis­degi forsetans þann 14. maí 2003.

„Hjón eiga sama lögheimili“

„Hjón eiga sama lögheimili. Hafi þau sína bækistöðina hvort skal lögheimili þeirra vera hjá því hjónanna sem hefur börn þeirra hjá sér. Ef börn hjóna eru hjá þeim báðum eða hjón eru barnlaus skulu þau ákveða á hvorum staðnum lögheimili þeirra skuli vera, ella ákveður Þjóðskrá Íslands það. Hjón, sem slitið hafa samvistir, eiga sitt lögheimilið hvort.“ Úr 7. grein laga um lögheimili.

Í frétt Rúv um málið var rætt við skatta­sérfræðinga sem gáfu lítið fyrir rök forseta­frúarinnar. Sögðu þeir líklegra væri að ástæðan fyrir lögheimilis­flutningum væru þrengri reglur um hemilisfesti í Bretlandi.

Frétt Rúv hljóðaði eftir­farandi:

Skatta­sérfræðingar gefa lítið fyrir þau rök að Dorrit Moussaieff hafi þurft að flytja lögheimili til Bretlands til að tryggja áfram­haldandi rekstur fyrir­tækis foreldra sinna. Líklegra sé að þrengri reglur um heimilis­festi í Bretlandi séu ástæðan.

Fréttir gærdagsins um að Dorrit Moussaieff, eiginkona Ólafs Ragnars Gríms­sonar, hafi flutt lögheimili sitt til Bretlands hafa vakið mikla athygli og spurningar um ástæðuna fyrir þessari ákvörðun. Forsetinn sagði í viðtali í fréttum RÚV í gær að Dorrit standi frammi fyrir því hvort fjölskyldu­fyrirtækið eigi að halda áfram eða ekki. Flutningur á lögheimili skiptir þar litlu sem engu máli að mati þeirra skatta­sérfræðinga sem frétta­stofa hefur rætt við. Fjöldi dæma sé um að fólk reki fyrirtæki í öðru landi en þar sem það á lögheimili, og slíkt skilyrði myndi reyndar brjóta gegn EES reglum.

Flutningur á lögheimili breytir ekki skatt­skyldu, megin­reglan er að búseta ræður því, og þá vaknar spurningin: hvar á að skatt­leggja Dorit Moussaieff, hér eða í Bretlandi?

Samkvæmt tvísköttunar­samningi við Bretland eru nokkrir þættir sem ráða þeirri úrlausn. Í fyrsta lagi má nefna fast heimili, sem í hennar tilviki er bæði á Bessa­stöðum og í London. Annar þáttur er miðstöð persónulegra hagsmuna. Dorrit er gift Ólafi Ragnari og hefur þannig rík persónuleg tengsl á Íslandi, en á foreldra og fjárhags­lega hagsmuni í Bretlandi. Spurningin er hvort þau tengsl eru sterkari en tengslin við Ísland. Þriðji þátturinn snýr að dvalar­tíma, og í því samhengi hafa bresk yfirvöld nýlega þrengt reglur, sem voru frjálslegar og auðugt fólk, þar á meðal íslendingar hafa nýtt sér á undan­förnum árum.

Rúv gerði einnig þekkt viðtal við Dorrit og Ólaf Ragnar þar sem forseta­frúin var spurð nánar út í þessa ákvörður og forsetinn var einnig spurður út í málið. „Heldurðu að ég vilji vera án Sámur minn? Ég sakna Sámur meira en ég sakna Ólafur. Ólafur getur komið í heimsókn til mín, Sámur má ekki koma í heimsókn til mín,“ sagði Dorrit er hún var spurð hvort hún ætlaði að dvelja minna á Íslandi en áður.

Hægt er að horfa á mynd­bandið hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Frétt

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Ráðherrar segja þróun heimsmála og breyttar áskoranir kalla á sterkari borgarlega innviði. Samningarnir voru undirritaðir að loknum fundi þjóðaröryggisráðs.
Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis