Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Þóra þögul um ásakanir Páls um glæpi: „Hvarflar ekki að mér að tjá mig nokkurn skapaðan hlut“

Það andar köldu á milli Þóru og Páls. Myndin er samsett.
Það andar köldu á milli Þóru og Páls. Myndin er sam­sett.

Þóra Arnórs­dóttir neitar að tjá sig um þungar ásakanir Páls Vilhjálms­sonar.

Páll Vilhjálmsson framhalds­skóla­kennari skrifaði blogg­færslu í morgun þar sem hann ber Þóru Arnórs­dóttur fjölmiðla­konu, þungum sökum en málið snýr að „Byrlunar­málinu“ svokallaða.

„Fyrsta yfirheyrslan yfir konunni fór fram 5. október. Tveim klukku­stundum fyrir yfirheyrsluna hringdi Þóra Arnórs­dóttir ritstjóri hjá RÚV í veiku konuna, sennilega ekki til að vita hvernig henni liði. Gögn lögreglu sýna yfir 20 símtöl Þóru og byrlara Páls skip­stjóra á tíma­bilinu sem yfirheyrslur fóru fram yfir fimm sakborningum,“ segir í blogg­færslu Páls.

Þá segir Páll einnig að miðlarnir sem bendlaðir eru við málið hafi samræmt frásögn sína til að hylja sann­leikann.

„RSK-miðlar, RÚV, Stundin og Kjarninn, reyndu frá ágúst að búa til samræmda frásögn um það sem gerðist í apríl og byrjun maí í fyrra þegar atlagan að Páli skip­stjóra var skipulögð og framkvæmd. Ekki undir neinum kringum­stæðum mátti hið sanna koma í ljós. Litla-Hraun og Hólms­heiði eru ekki skemmtilegir áfanga­staðir. Lögreglan hlustaði.“

Mannlíf heyrði í Þóru og bauð henni að svara þessum þungu ásökunum Páls.

„Nei, það hvarflar ekki að mér að tjá mig um nokkurn skapaðan hlut sem hann skrifar.“

Þegar Mannlíf spurði Pál hvaðan hann fékk þessar upplýsingar var svarið stutt og laggott en ekkert sérlega upplýsandi.

„Ég hef mínar heimildir.“

Mannlíf heyrði í Páli Steingríms­syni skip­stjóra og spurði hann fyrst út í heilsuna og svo út blogg­færslu nafna hans Vilhjálms­sonar og gang málsins.

„Takk kærlega fyrir að spurja um heilsu mína en ég var útskrifaður af læknum 27. júlí síðastliðinn, en varðandi aðrar spurningar þá get ég ekki svarað þeim að svo stöddu þar sem rannsókn lögreglu er ekki lokið, og hvaðan nafni hefur sínar upplýsingar þá hef ég mikið klórað mér yfir því, þar sem það lýtur út fyrir að hann sé með heimildar­mann sem virðist hafa mikinn aðgang að upplýsingum og margt sem frá honum kemur hefur síðan raungerst dögum eða vikum seinna, en ég hef kosið að fara þá leið að tjá mig ekki því ég vil ekki bera sakir á neinn sem á það ekki skilið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Vissu ekki að 1.468 skilaboð hefðu varðveist
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

„Við syrgjum sjómennina þrjá sem létu lífið í sjóslysinu í gær“

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum