Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Hrafn segir Surtlu hafa minnkað: „Ég ætla alla leið í vítaspyrnukeppni, ef þörf krefur“

Hrafn Jökulsson, rithöfundur, skák­frömuður og ýmislegt fleira, berst eins og alþjóð veit af krafti við erfitt krabba­mein sem hann kallar Surtlu. Hefur baráttu­þrek hans vakið aðdáun Íslendinga en hann vill ekki vera kallaður hetja.

Hrafn skrifaði færslu rétt yfir 13:00 í dag á Facebook þar sem hann segir að Surtla hafi minnkað en baráttuna kallar hann Operation Mikael.

„OPERATION MIKAEL —

Kæru vinir. Geisla- og lyfja­stríð hafa greitt Surtlu þung högg. Lítil var hún fyrir en nú er hún ennþá minni. Margar jákvæðar tölur en Surtla er auðvitað langt í frá búin að vera og lungna­bólgan er svæsin. En á þessum afmælis­degi pabba skulum við nota orð Winstons vinar okkar:„Now this is not the end. It is not even the beginning of the end. But it is, perhaps, the end of the beginning.“,“ skrifaði Hrafn og bætti við:

„Höfum eitt á tæru, við Surtla verðum aldrei sundur skilin. Þegar hún skaut upp sínum svarta kolli, var útlit fyrir að baráttan stæði aðeins í örfáar vikur. Skapari minn hefur nú hleypt mér í fram­lengingu á úrslita­leiknum mikla. Þetta hefur verið stórkost­legur tími og ég ætla alla leið í vítaspyrnu­keppni, ef þörf krefur.“

Því næst þakkaði Hrafn stuðninginn sem hann hefur fundið fyrir síðan bardaginn við Surtlu hófst en bað fólk að gera ekki of mikið úr hetjuskap sínum:

„Stuðningur vina minna hefur verið ómetanlegur, og öll ykkar fallegu orð.En ég bið ykkur elsku vinir að gera ekki of mikið úr „hetjuskap mínum“, ég fer hjá mér við slíkt. Í okkar heimi eru óteljandi hetjur sem takast á við verkefni lífsins frá degi til dags án þess að fá nokkurt hrós. Það eru hvunndagshetjurnar sem ég ber ótakmarkaða virðingu fyrir. Fólkið sem vaknar á morgnana og fer og lætur gott af sér leiða. Fólkið sem ferðast yfir hálfan heiminn til að skapa börnum sínum nýtt líf. Fólkið sem lætur ekki bugast frammi fyrir vald­níðslu og skepnu­skap. Börnin á Barna­spítala Hringsins og öll börn sem mæta óréttlæti hinna fullorðnu.

Kæru vinir, yfir mig hefur rignt óverðskulduðum yfir­lýsingum um hetjuskap minn. Innilegar þakkir en margir verðskulda slíkt lof fremur en ég. Ef þið viljið gleðja mig, gerið það með því að taka eftir hetjunum, alvöru hetjunum. Það vekur mér sanna gleði ef þið rifjið upp eitthvað sem ég hef gert en ekki hvernig ykkur finnst að ég sé. Ég bið ykkur að rifja upp sögur fremur en lýsingar á persónu minni. Finnið ykkur hetjur dagsins og sendið mér sögur af þeim.“Í niðurlagi færslunnar segir hann baráttuna rétt að byrja og að næstu daga þurfi hann að einbeita sér að slagnum sem framundan sé.„Já, baráttan er rétt að byrja ef Skapari minn leyfir. Nú mun ég einbeita mér að þeim mikla slag, nú þegar Surtla hopar tíma­bundið út í horn að sleikja sín geislasár. Verið viss um eitt: hún getur lokið dansinum í einu vetfangi, en ég mun dansa og dansa, ýmist byrstur eða með bros á vör. Á næstu dögum mun ég pósta færra hér á facebook og einbeita mér að næsta kafla í þessum stórkost­lega seinni hálfleik lífs míns.LAG DAGSINS: Dalaka Obala.AFMÆLISBARN DAGSINS: Jökull Jakobsson.

FRAM TIL SIGURS!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“