Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Rökþrot alþingsmanns VG: „Það eru líka fullt af innfæddum Grikkjum sem hafa ekki aðgang að því,“

Alþingismaður Vinstri grænna, Jódís Skúladóttir, í Silfrinu. Myndin er samsett
Alþing­is­maður Vinstri grænna, Jódís Skúla­dóttir, í Silfrinu. Myndin er sam­sett

Í Silfrinu, síðastliðinn sunnudag, bauð Egill Helgason, umsjónar­maður þáttarins, til sín alþingis­mönnunum Eyjólfi Ármanns­syni, Diljá Mist Einars­dóttur, Jódísi Skúla­dóttur og Arndísi Önnu K. Gunnars­dóttur. Egill stýrði samræðunum að stöðu flótta­fólk og útlendinga­frumvarpi Jóns Gunnars­sonar dómsmála­ráðherra sem hefur verið til umræðu á Alþingi.

Hart var tekist á um málefnin og bendir Arndís að flótta­fólk sem hefur fengið vernd á Grikk­landi hafi sannarlega ekki fengið vernd. „Fólk áttar sig til dæmis ekki á því hvaða verndar­leysi felst í því að vera húsnæðis­laus. Ef ég bý ein með barnið mitt þriggja ára í tjaldi og einhver ætlar að taka það af mér – Hvað ætla ég að gera?“ og bendir á að hún muni ekkert geta gert. Arndís bendir jafnframt á að einungis brotabrot af flótta­mönnum sem leiti eftir vernd á Íslandi tilheyri þessum hópi. Hún bendir á að ástandið í Grikk­landi sé orðið það slæmt að Þýskaland hugleiði nú að hætta að senda fólk aftur til Grikkalands.

Jódís Skúla­dóttir alþings­maður VG hefur mál sitt á að segja að um ræði hugsanlegan orðaleik og segir: „Sko staðan er þannig; Þú ert að flýja frá stríðs­hrjáðu landi og kemur til Grikk­lands. Þá er búið að veita þér vernd frá því ástandi sem þú ert að flýja.“ Og bætir við: “Færðu húsnæði, heilbrigðis­þjónustu, atvinnu­tækifæri? – Það er ekkert víst„

„En það eru líka fullt af innfæddum Grikkjum sem hafa ekki aðgang að því,“ bendir hún á.

Jódísi hefur mætt hörð gagnrýni víðs vegar í samfélaginu í kjölfarið og vilja margir meina að alþingis­maðurinn hafi komist í rökþrot þegar hún stillir saman tveimur minnihluta­hópum til að jafnrétta þann skort á mannúð og skilning þessum hópum mæti. Megin vandinn felist í að innviðir Grikk­lands standast ekki álagið og þörf sé á að önnur ríki aðstoði.

Nýtt útlendingafrumvarp

Arndís Anna K. Gunnars­dóttir alþingis­maður Pírata, og fyrrum lögfræðingur Rauða kross Íslands, hefur barist hart gegn frum­varpinu og segir það ómögulegt. Hún vill meina að frum­varpið leysi ekki neina af þeim áskorunum sem íslenska ríkið stendur frammi fyrir og að frum­varpið sé auglýst undir því yfirskyni að það eigi að auka skilvirkni og staumlínulaga kerfið: „Og virðist fólk gleypa við því – En það er bara alls ekki tilfellið,“ fullyrðir hún og bætir við að alla heildarsýn virðist vanta og minni frum­varpið meira á óskalista starfs­fólks Útlendinga­stofnunar. Arndís bendir jafnframt á að með reynslu síðustu mánaða í móttöku flótta­fólks frá Úkraínu, að ekki sé þörf á að gera laga­breytingar til að tryggja skilvirkni í kerfinu. Og segir að megin forsendur að baki nýs frumvarp sé til að sporna gegn misnotkun, og um forsendurnar segir hún: „Þær eru bara svo rangar“. Arndís vill meina að misnotkunin sé sáralítil og ekki vanda­málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim