Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Matgæðingur Mannlífs: „Aldrei að vita nema eldri fjölskyldumeðlimir eigi Raclette-grill“

Íris Ellenberger er þekkt sem bæði baráttu­kona og fræðikona, sem er jákvætt því það er ekkert verra en þegar ófróðir taka slaginn. Íris er fædd og uppalin á Íslandi, en faðir hennar og ættar­nafnið eiga rætur sínar að rekja til Sviss sem rómað er fyrir hornrétt fólk og ofur­skipulagt, en þaðan kemur líka Raclette sem er svolítið mótsagna­kennt, því þar er einfalt grunnstef og svo er fólk bara hvatt til að gera tilraunir og gleyma öllum uppskriftum. 

Það er við hæfi að Íris hvetji okkur til að gera tilraunir í eldhúsinu, enda hefur hún alla tíð barist fyrir því að einstaklingar fái að finna sína eigin leið að hamingjunni.

Íris Ellen­berger

„Fyrir Raclette þarf í grunninn bara þrennt: Ost, kartöflur og Raclette-grill. Allt annað, grænmeti eða kjöt, velur fólk eftir smekk og áhuga. Þegar ég var barn þá suðum við einfald­lega kartöflur, steiktum skinku ofan á grillinu og bræddum ost í skúffunum, helltum ostinum svo yfir kartöflurnar og skinkuna og borðuðum með bestu lyst. Í dag nota ég fjöl­breyttara hráefni; sveppi, kúrbít, eggaldin og lauk, stundum papriku eða bara hvað sem mér dettur í hug. Það er hægt að finna sérstakan Raclette-ost í flestum sælkera­búðum landsins, en ég nota oftast venju­legan íslenskan Ísbúa sem hefur jafnvel brætt hjörtu og bragð­lauka minna svissnesku ættingja. 

Í lok máltíðarinnar erum við Íslendingarnir í fjöl­skyldunni vön að brytja banana niður í skúffurnar, setja ost yfir og láta þetta malla á grillinu. Alveg rosalega eitís samsetning, en þessa hefð fengum við að láni frá íslenskri vinkonu okkar sem hefur borðað Raclette með fjöl­skyldu sinni frá því að hún var barn. 

Raclette var nefnilega í tísku á níunda áratugnum, svo aldrei er að vita nema að eldri fjölskyldu­meðlimir eigi Raclette-grill sem rykfellur inni í geymslu og bíður bara eftir að komast aftur í notkun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Stúlkan var á rafmagnsreiðhjóli á Byggðavegi við Vanabyggð. Lögregla óskar eftir upplýsingum frá vitnum.
Innlent

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Sakaferill mannsins nær aftur til ársins 2010

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto