Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Íslensk ungmenni saklaus í amerísku fangelsi: „Farið að líða eins og sögupersónu í hryllingsmynd“

Kristrún Gunnarsdóttir fyrir utan fangelsishliðið eftir að henni var sleppt út haldi.
Kristrún Gunn­ars­dóttir fyrir utan fang­els­is­hliðið eftir að henni var sleppt út haldi.

Kristrún Gunnars­dóttir og vinur hennar, sem hún kallar Einar, lentu í ótrúlegri atburðarás á ferðalagi um sýslur Kaliforníu. Þau kynntust manni að nafni Ziegler og ákváðu að ferðast um Kaliforníu með honum þar sem hann sagðist þekkja fylkið vel. Þau eru svo síðar stoppuð af vega­lögreglu vegna hrað­aksturs en þá kemur í ljós að ökuskírteini Zieglers er útrunnið. Við leit í bílnum og í föggum þeirra fann lögreglu­maðurinn eiturlyf í farangri Zieglers og handtók þau öll á staðnum. Við tók barátta við kerfið.

Þessi ótrúlega sanna saga gerðist árið 1988 en hér fyrir neðan má lesa umfjöllun DV um málið:

Íslensk ungmenni lentu í fangelsi í Kaliforníu

– voru farþegar í bíl manns sem reyndist vera eiturlyfja­sali

Ævintýri stór og smá hafa heiUað margan manninn en stundum getur ævintýrið skyndi­lega breyst í martröð, líka þeim sem þekkjast í hryllings­myndunum og engan óraði fyrir.
Íslendingar fara ekki varhluta af þvílíkum óvæntum uppákomum þótt slíkt gerist vonandi ekki oft. Ung íslensk stúlka, Kristrún Gunnars­dóttir, upplifði í byrjun sumarsins skelfi­lega martröð er hún var á ferðalagi í Los Angeles.

Kristrún kom til stór­borgarinnar í vor ásamt vini sínum, sem hún kýs að kalla dulnefninu Einar. Hún hugðist sækja um skólavist í nokkrum myndlistar­skólum í Los Angeles. Tímann fram að hausti ætluðu þau svo að nota til að ferðast um Kaliforníu og næstu fylki.
„Við þóttumst heldur betur heppin þegar við kynntumst Ziegler sem að eigin sögn hafði í mörg ár ekið vöru­flutningabíl. Sagðist hann þekkja landið mjög vel og vita hvar væru fallegir og áhuga­verðir staðir. Við þrjú ákváðum þá að leggja saman af stað í ferðalag. Þetta var um mánaða­mótin maí-júní. Til að byrja með var ferðinni heitið í norður, gegnum
Kalifomíu til Oregonfylkis, þar sem Ziegler sagðist eiga ættingja og vini.

Svo var það aö morgni fostudagsins 3. júní að bifreiðin, sem þau voru í, var stöðvuð vegna hrað­aksturs. Vorum við þá stödd á þjóðvegi 97, í rétt um 50 km fjarlægð frá mörkum Kaliforniu og Oregon. Ég og Einar vorum bæði sofandi í bifreiðinni en vöknuðum við samtal Zieglers og vega­lögreglu­þjónsins Himburger. Hann tók ökuskírteini Zieglers til athugunar á
tölvunni sinni í lögreglu­bílnum. Kom hann svo til baka og spurði hvort þau hefðu áfengi í bílnum. Þegar hann hafði gert lauslega leit á gólfi og undir sætum leyfði hann okkur að halda ferðinni áfram.

Um 15 mínútum síðar stöðvaði Himburger bifreiðina aftur. Lögreglu­þjónninn var þá að tilkynna Ziegler að skírteini hans væri útrunnið. Himburger bað okkur öll að stíga út úr bílnum og spurði mig og Einar um ökuskírteini sem bæði reyndust í lagi. En Himburger lét
ekki þar við sitja heldur hóf hann að tína út úr bílnum persónulegar eigur okkar. Opnaði hann töskur og annað án þess að biðja um leyfi, hvað þá að hann hefði nokkurt opinbert
leyfi.

Vinurinn orðinn eiturlyfja­sali

Og þá skall reiðarslagiö yfir. Upp úr snyrti­tösku Zieglers dró hann lítinn poka sem innihélt marijuana, um það bil 5 grömm, og lítið meðala­glas sem Ziegler tjáði honum að innihéldi
kókaín. Það næsta sem gerðist var að við Einar vorum látin sitja aðskilin utan vegar á meðan Himburger kallaði á aðstoð fíkniefna­lögreglu.

Hún mætti á staðinn og grand­skoðaði bílinn, með þeim árangri að í fórum Zieglers fundust 3 únsur af kókaíni og 1 únsa af marijuana. Ziegler tjáði lögreglunni strax að hann ætti efnið og við Einar værum ekki einu
sinni í vitorði. Lögreglan sýndi orðum hans lítinn áhuga og vorum við öll þrjú færð til næsta fangelsis sem er í Yreka, 5000 manna bæ rétt við mörk fylkjanna.

Við vissum ekki hvaðan á okkur stóð veðrið. Ziegler kom okkur svo sannarlega á óvart. Hann reyndist allt í einu vera kókaín­neytandi og sölumaður sem stóð í smygli á milli
fylkja. Samt hafði hann manndóm til að skammast sín fyrir óþægindin sem hann var að baka okkur því hann marg­endurtók játningu sína sem eigandi efnisins, bæði við handtöku og eftir að við komum til fangelsisins. En allt kom fyrir ekki. Öll vorum við bókuð inn í fangelsið með sömu ákæru. Þegar bókun var lokið var okkur vísað sínu á hvem almennings­klefann.

Ziegler

Það leið á fimmta sólar­hring áður en við komum fyrir dómara í fyrsta
sinn. Í milli­tíðinni hafði enginn spurt okkur eins eða neins, ekki einu sinni hvort við hefðum lögfræðinga eða hvort sveitar­félagið þyrfti að útvega almennings­verjendur. Þar sem við Einar höfðum ekkert á okkar samvisku biðum við með þolinmæði eftir þvi að þessi misskilningur yrði leið­réttur. En þrátt fyrir fávísi okkar um bandarískt réttar­kerfi var okkur
strax farið að gruna að ekki væri allt með fefldu. Það var því lán í óláni að föngum í þessu fangelsi er frjálst að nota síma, svo framarlega sem hringt er „collect“. Gátum við því haft síma­samband við íslenska konu, Gerði, sem við bjuggum hjá í Los Angeles, til að hafa með í ráðum.“

Lögreglu­ofríki í Kaliforníu?

Kristrún talar um í upphafi að gífur­legum fjármunum sé eytt í aukinn herafla yfirvalda til að stemma stigu við sölu og dreifingu á eitur­lyfjum, sérstak­lega á kókaíni. En þessi aukni herafli í leit að glæpa­mönnum hafi hins vegar valdið almennum borgurum alls kyns óþægindum. Yfirvöld virðast ekki alltaf vita hvar takmörkin liggja og hafa saklausir
mátt heyja harða baráttu við að sanna sakleysi sitt, að sögn Kristrúnar. Fólk þarf að þola líkams­leit og jafnvel húsleit að ósekju. Af þessum sökum hefur sprottið upp umræða á
opinberum vettvangi um hættuna á að lögreglu­ofríki sé að skapast í Kalifomíu. Segir Kristrún að sú umræða hafi jafnan verið þögguð niður þar sem um ákaflega viðkvæmt mál sé að ræða og að yfirvöld vilji sem minnst ræða um þessar aukaverkanir af aðgerðum sínum. 

Aðeins einn almennings­verjandi í sýslunni

„Svo klukkan fjögur á þriðjudegi vorum við færð í réttarsal. Rétturinn fór þannig fram að ákveðinn var nýr dómsdagur að viku liðinni og að öll þrjú þyrftu alméfiningsverjanda.
Síðan var okkur vísað aftur til klefa. Í þetta skiptiö mátti líða vika til viðbótar áður en hreyfing kæmist á málið og enn hafði enginn spurt okkur stakrar spurningar. Þetta var óhugnanleg tilfinning. Mér var farið að líða eins og sögu­persónu í hryllings­mynd. Tekin til fanga og mátti svo bara sitja á bak við rimla án þess einu sinni að fá að tjá mig um málið. Við hringdum í Gerði og sögðum henni hvernig fór í réttinum. Henni var líka hætt að standa á sama. Miðað við þær lögfræði­upplýsingar, sem hún hafði aflað sér, var margbúið að bijóta á rétti okkar. Gerður óttaðist að yfir­völdum yrði ekki treystandi til að ganga eðlilega
fram í þessu máli og tók sér því sjálf ferð á hendur norður til Siskiyousýslu, í þeim erindum að útvega lögfræðinga til varnar. Hún kom til Yreka-bæjar síðdegis á föstudag og fór strax að hitta Mr. Brown, lögfræðing sem henni hafði verð bent á. Helgina sem í hönd fór notaði
Gerður til að kynna sér bæjar­lífið í Yreka. Komst hún fljótt að því að eitthvað væri bogið við yfirvöld á þessum stað.

Til dæmis var nýlega kosið um dómara. Annar af almennings­verjendum staðarins bauð sig fram en tapaði. Hann rauk þá í fússi úr bænum og þess vegna var bara einn almennings­verjandi í sýslunni. Hann átti svo einn að taka mál okkar þriggja fyrir rétti sem er nátt­úrlega ólöglegt.

Gerði fannst, eins og okkur, sem í þessari sýslu væri andi eins og maður sér stundum í bíómyndum. Sagan um smábæinn einangraða þar sem löggan og dómarinn halda öllum í
heljar­greipum. Í fangelsis­garðinum hitti ég til dæmis bónda sem dæmdur var fyrir nautgripa­þjófnað vegna þess að yfirvöld þurftu á land­svæðinu hans að halda. Annað dæmi er maður sem sat í klefa með Einari. Hann var sakaður um að hafa stolið eigin bíl, hvemig sem það er nú hægt. Það tók foreldra mannsins um það bil viku að sanna eignar­rétt hans
á bílnum, en á meðan mátti hann sitja á bak við rimla.

Þetta er óneitaniega hálf­undarlegt allt saman og ég held að fólk þurfi að lenda í svona stöðu til að skilja hversu hættulegt lögreglu­ríki getur orðið. Ekki það að glæpamenn eigi
að vaða uppi hindrunar­laust heldur verða að vera skýr og greinileg mörk á því hvenær yfirvöld mega grípa til aðgerða og hvenær ekki.

Á mánudeginum fékk Mr. Brown skýrsluna frá Himburger og fíkni­efna­deildinni. Þá var búið að athuga hvort við værum eftirlýst hjá alþjóða­lögreglu eða annars staðar í Banda­ríkjunum. Svo reyndist ekki vera. Þegar Mr. Brown fór í gegnum skjölin kom í ljós að mér var haldinni fanginni án gildrar ástæðu. Himburger hafði með loönu orðalagi tengt Einar við kassettu­tösku sem í fannst glas með kókaíni, en orðalagið eitt var ekki næg ástæða til að halda honum föngnum. Heimilt hefði verið að halda honum til yfirheyrslu í 3 sólar­hringa en eins og komið hefur fram hafði enginn spurt okkur nokkurrar spurningar í hátt á aðra viku.

Vega­lögreglan fræg fyrir ótuktar­skap

Mr. Brown fannst þetta mál allt mjög áhugavert. Hann vissi að Himburger var frægur fyrir ótuktar­skap og upplognar sakir. Honum var líka uppsigað við yfirvöld á staðnum og sá sér þarna færi á að ná sér niðri á þeim. Mr. Brown tók að sér mál Einars og útvegaði mér traustan mann. Ziegler varð að notast við almennings­verjanda staðarins sem fer að
jafnaði með um 20 mál á dag.

Á þriðjudags­morgni kl. 9 vorum við færð í réttarsal í annað sinn. Það
sem geröist í réttar­salnum þennan morgun var að dómarinn spurði um
Himburger sem sitja átti fyrir svörum vegna skýrslu sinnar. Himburger
mætti ekki á staðinn vegna „anna“ eins og saksóknari orðaði það. Dómarinn varð þá ævareiður og frestaði rétti fram yfir hádegi. Lögfræðingamir fengu ekki að segja eitt einasta orð.

Eftir hádegi var svo aftur mætt í réttarsal. Himburger var enn ekki mættur. Mr. Brown tókst að koma því að að Einar væri saklaus og auðvelt væri að sýna fram á það. Mínum lögfræðingi tókst að segja eitthvað svipað. Dómarinn, sem var hálf­heyrnarlaus, virtist ekki vita hver væri að verja hvern. Hann þaggaði niður í lögfræðingunum á þeim forsendum að allir væru að tala í einu og ákvað síðan nýjan dómsdag, föstu­daginn 17. júní. Enn einu sinni var okkur þremenningunum vísað í klefa án þess að nokkur árangur
næðist.

Lögfræðingarnir voru bæði reiðir og móðgaðir. Mr. Brown hóaði í minn lögfræðing og almennings­verjandann og boðaði þá til fundar á skrif­stofu sína. Þeir bára saman bækur
sínar og komust að því að sækjandi hafði í raun ekkert mál að sækja þar sem yfirvöld hegðuðu sér ólöglega frá upphafi málsins. Leitin í bifreiðinni og handtakan fór ólöglega fram
og var búið að brjóta ítrekað á rétti okkar. Það var illa komið við kauninn á yfir­völdum sýslunnar þegar lögfræðingamir höfðu samband við skrif­stofu saksóknara og tjáðu honum að allt þetta mál ætti með réttu að falla niður. Yfirvöld vildu samt ekki missa málið alveg úr höndunum þar sem Ziegler var augljós­lega sekur um eitur­lyfjasölu og dreifingu. Brugðu þau því á það ráð að leggja samninga fyrir lögfræðingana og leysa málið þannig af sanngirni.

Loks vorum við sýknuð

Á fimmtudeginum fékk Ziegler svo í hendurnar plagg þar sem hann sjálf­viljugur sækir um meðferð sem eiturlyfja­sjúklingur í 3 mánuði og verður síðan undir eftirliti yfirvalda í þrjú ár þar á eftir. Undir­ritaði hann með þeim skilmálum að við yrðum sýknuð af öllum ákærum. Þá voru okkur fengin í hendur plögg til undir­ritunar þar sem ákærur á hendur okkur falla niður ef við lofum að ákæra ekki: Siskiyou-sýsludóm, vega­lögreglu sýslunnar, fíkniefna­lögregluna, yfirvöld Kaliforníu-fylkis eða bandaríska ríkið.

Við undir­rituðum bæði án þess að hugsa út í hvað lögsókn gegn þessum aðilum gæti þýtt. Seinna kom í ljós að við hefðum átt rétt á að minnsta kosti fjórum milljónum íslenskra
króna í skaða­bætur.

En þetta var virkilega fallegur 17. júní og loksins vorum við orðin einhvers virði,“ segir Kristrún. „Það er sárt til þess að hugsa hve saklausir þurfa oft að leggja mikið á sig til að
sanna sakleysi sitt. En stríð er stríð og aldrei að vita hvenær veðjað er á rangan hest.“
-RóG.

Baksýnis­spegill þessi birtist áður þann 20. apríl 2022.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim