Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Austfirðingar spenna síst bílbelti samkvæmt nýrri könnun

Minn­ing­ar­dagur um þá sem lát­ist hafa í umferð­inni hald­inn í dag um allt land

Bangsi í belti
Bangsi í belti Eru ekki allir spenntir? Mynd: Shutterstock

Ný könnun Gallup fyrir Sam­göngu­stofu sýnir að íbúar á Aust­ur­landi eru treg­ari en lands­menn almennt til að nota bíl­belti. Um helg­ina verður víða um land minnst þeirra sem hafa látið lífið í umferð­ar­slysum, m.a. á Breið­dals­vík, Egils­stöðum og Eski­firði. Þetta kemur fram hjá Aust­ur­frétt.

Samkvæmt nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar, sem gerð var í tengslum við minn­ing­ar­dag fórn­ar­lamba umferð­ar­slysa í dag, sker Aust­ur­land sig veru­lega úr þegar kemur að notkun örygg­is­belta. Sextán pró­sent Aust­firð­inga sögð­ust hafa ekið inn­an­bæjar án beltis oft á síð­ustu sex mán­uðum, sem er hæsta hlut­fallið í land­inu. Aðeins 63% nota beltin ávallt, lægsta hlut­fallið á lands­vísu, og svar­mögu­leik­inn „oft“ sést varla hjá öðrum lands­hlutum.

Svipað mynstur kemur fram þegar spurt er um far­þega.
– 9% Aust­firð­inga hafa oft setið í fram­sæti án beltis, en 75% aldrei.
– Í aft­ur­sæti voru 16% oft eða stundum án beltis og 73% aldrei.

Margir telja óþarft að nota bílbelti í stuttum ferðum

Notkun eykst þegar horft er til ferða utan þétt­býlis, en Aust­firð­ingar eru þó einnig þar aft­astir í flokki.
– 12% spenna sjaldan eða aldrei beltið utan þétt­býlis, á móti 79% sem gera það alltaf.
– Í fram­sæti segj­ast 9% sjaldan nota beltin en 82% alltaf.
– Í aft­ur­sæti er hlut­fallið 15% gegn 82%.

Algeng­ustu skýr­ing­arnar á bíl­belta­leysu eru að fólk gleymi belt­inu eða telji það óþarft í stuttum ferðum. Aust­firð­ingar nefna oftar en aðrir að þeir finni fyrir meira öryggi án beltis eða finn­ist þau óþægi­leg. Könnunin byggir á svörum 33 Aust­firð­inga og 969 þátt­tak­enda á lands­vísu og var fram­kvæmd í októ­ber.

Í ár er sér­stök áhersla lögð á bíl­belti í tengslum við minn­ing­ar­dag­inn, þar sem könn­unin sýnir að 10–15% lands­manna sleppi reglu­lega við að nota þau. Samkvæmt nýrri sam­an­tekt Sam­göngu­stofu voru yfir helm­ingur þeirra sem hafa lát­ist inn­an­bæjar síð­ustu 20 ár ekki í beltum. Líkur á að far­þegi án beltis láti lífið í slysi eru þrett­án­falt meiri en hjá þeim sem nota belti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Landið

Leifar af skála frá land­náms­tíma fund­ust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heill­uð­ust af íslenska hálend­inu

Andri Snær rifjar upp fórn­irnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leð­ur­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leð­ur­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heil­brigð­is­eft­ir­lits Aust­ur­lands sagt upp