Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Seðlabankastjóri sleit vinskapi við Val: „Væri nú gott ef stýrivextirnir hans unfrienduðu mig líka“

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri.

Ásgeir Jónsson seðla­bankastjóri sleit vinskap við Val Arnarson, verk­fræðing og tónlistar­mann, í gær. Í það minnsta „de-friend-aði“ hann Val á Facebook. Svo virðist sem seðla­bankastjóra hafi ekki hugnast grín Vals á kostnað forsætis­ráðherra, Katrínar Jakobs­dóttur.

Valur segist í samtali við Mannlíf hafa tekið eftir þessu í gær en í símanum sínum er hann með forritið Unfriend Finder. Líkt og nafnið gefur til kynna getur hann séð með því hver afvinar hann á Facebook. Hann telur allar líkur á því að færsla hans um Katrínu hafi gert útslagið.

Í þeirri færslu deildi hann færslu Jæja þar sem gert var grín að því að nú séu fimm ár síðan Katrín sagði á Alþingi: „Stjórn­völd eiga ekki að biðja fátækt fólk á Íslandi að bíða eftir réttlætinu.“ Í þeirri færslu segir enn fremur:

„Í dag, 13. september, eru fimm ára síðan Katrín Jakobs­dóttir lát þessi orð falla í ræðu á Alþingi og enn bíðum við. Þetta var korter í kosningar 2017. Skömmu seinna var hún orðin forsætis­ráðherra. Síðan þá hefur fyrir­sjáanlega ekkert gerst í málefnum fátækra, öryrkja, eða láglaunafólks, nema til hins verra. Samstarf við Sjálfstæðis­flokkinn var aldrei að fara að skila rétt­látara samfélagi og mun aldrei gera það. Því Sjálfstæðis­flokkurinn er flokkur auðstéttarinnar sem hagnast á okur og arðráns­kerfinu sem flokkurinn hefur byggt upp í landinu. Tugþúsundir Íslendinga búa við fátækt. Kostnaður almennings við að lifa hefur aukist stórkost­lega á þessum árum og núna hefur verðbólga bæst við sem kemur verst niður á fátæku fólki. Bensín­verð er það hæsta í heiminum á Íslandi og matvæla­verð með því hæsta.“

Valur tekur vinaslitinum við seðla­bankastjóra ekki illa og segir: „Mikið væri nú gott ef stýri­vextirnir hans unfrienduðu mig líka.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“