Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

„Seilist enn á ný í vasa almennings“

Diljá Mist hjólar í nýtt fjár­laga­frumvarp

Diljá Mist
Diljá Mist furðar sig á leið rík­is­stjórn­ar­innar Mynd: Víkingur

Nýtt fjár­laga­frumvarp ríkis­stjórnarinnar fyrir árið 2027, sem kynnt var í dag, mætir harðri andstöðu af hálfu stjórnar­andstöðunnar. Diljá Mist Einars­dóttir, alþingis­maður Sjálfstæðis­flokksins, gagnrýnir fyrir­hugaðar skatta- og gjalda­hækkanir harðlega í opinberri færslu og segir árangur stjórn­valda hingað til engan.

Í nýja frum­varpinu er boðuð dulin skatt­hækkun á almenning með því að láta persónu­afslátt og skattþrep hækka minna en núgildandi reglur segja til um. Þessi breyting, sem stjórn­völd rökstyðja með vísan til styttri vinnuviku og minni framleiðni­aukningar, á að skila ríkis­sjóði 3,1 milljarði króna í auknar tekjur árið 2027. Auk þess er áformað að hækka banka­skatt um rúmlega 75 prósent.

Gagnrýnir efnahagslegt árangursleysi

Diljá Mist segir jákvætt að stefnt sé að halla­lausum fjárlögum fyrir árið 2027, enda sé nauðsynlegt að vinna á þeim halla­rekstri sem myndaðist vegna ítrekaðra áfalla undan­farin ár. Hún setur hins vegar stórt spurningar­merki við þá leið sem ríkis­stjórnin velur til að ná því markmiði.

„Leiðin sem ríkis­stjórnin velur að þeim eru hins vegar skatta- og gjalda­hækkanir á fólk og fyrirtæki í landinu. Mér er það til efs að þessar hækkanir muni skila tilætluðum tekjum — það er s.s. ólíklegt að planið gangi eftir,“ ritar Diljá og bætir við að landsmenn séu orðnir vanir því með þessa ríkis­stjórn.

Hún sakar stjórn­völd um að skjóta sér undan erfiðum ákvörðunum í ríkis­rekstrinum. „Í stað þess að draga úr útgjöldum og minnka ríkis­báknið seilist ríkis­stjórnin enn á ný í vasa almennings.“

Að mati Diljár vinna þessar aðgerðir beinlínis gegn því megin­markmiði sem ríkis­stjórnin var kosin til að fylgja eftir. „Þessar aðgerðir eru ekki til þess fallnar að ná niður verðbólgu og þar með vöxtum eins og stjórnin var kosin til að gera. Árangur þeirra hefur enda hingað til verið enginn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Pólitík

„Við skulum ekki gera lítið úr baráttu íslenskra kvenna“

Á alþjóðadegi Sameinuðu þjóðanna gegn ofbeldi á konum ræddi Diljá Mist Einarsdóttir stöðu kvenna
  • Grímur þekkir óttann um öryggi fjöl­skyldunnar

  • „Ég vil ekki mæta í fleiri jarðar­farir ungra manna“

  • Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

  • Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

  • Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun