Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Séra Auður Eir rengir rétt vistheimilanefndar: „Fólk hefur svo gaman af þessu“

​​Blaða­maður hitti séra Auði Eiri Vilhjálms­dóttur til þess að falast eftir svörum hennar við þeim ásökunum sem á hana, Bjarg og starfs­konur heimilisins hafa verið bornar í gegnum tíðina. Meðal þeirra ásakana eru þær sem koma fram í viðtali við Sonju Ingva­dóttur í nýjasta tölublaði Mannlífs, en hún er ein þeirra sem vistuð var á Bjargi á sínum tíma.

Hér fyrir neðan er brot af svörum séra Auðar Eirar sem birtust í blaðinu, en viðtalið við hana verður birt í heild sinni á vefnum innan tíðar.

Segist engu hafa ráðið 

Þegar blaða­maður hefur á orði að margir hafi talað um að hún sjálf hafi haft töluvert um rekstur Bjargs að segja, segir hún það ekki rétt.

„Þessu var stjórnað af þeim starfs­konum sem þarna voru og svo yfir­stjórn Hjálpræðis­hersins. Ég var ekki í yfir­stjórn Hjálpræðis­hersins. Ég var í stjórn heimilisins,“ segir hún þegar hún er beðin um að lýsa stjórnar­fyrir­komulaginu.

„Ég réð svosem ekki neinu. Ekki þannig.“

Menntamálaráðherra og barnaverndarnefnd

Talið berst að því ekki hafi verið höfðað formlegt mál á hendur Bjargi í kjölfar kærunnar á sínum tíma, vegna ónógra sannana. Menntamála­ráðuneytið var yfir vist­heimilum og átti þátt í þeirri ákvörðun, enda fór málið meðal annars inn í ráðuneytið þegar það var rannsakað og fór á milli embætta.

Og menntamála­ráðherra á þessum tíma er föður­bróðir þinn. 

„Já.“

Blaða­maður bendir á að fólk hafi velt fyrir sér þessum tengslum. Hvort þau hafi eitthvað haft um málið að segja. Aðspurð hvað henni finnist um það svarar séra Auður Eir:

„Ekkert. Það hefur áreiðanlega ekki neitt að segja. Engan veginn. Þó ekki væri. Því svona mál verða bara að hafa sinn gang. Það verður að reka svona mál til þrautar, allra aðila vegna. Þannig að það er útilokað. Þetta er bara þannig.“

Málið fór á sínum tíma í gegnum barna­vernd, hvar móður­bróðir séra Auðar Eirar, séra Gunnar Árnason sat.

Aðspurð um mat hennar á því hvort mennirnir tveir hafi verið til þess fallnir að gæta hlut­leysis í störfum sínum, vegna þess að hún hafi verið náfrænka þeirra, segir hún:

„Ég segi að það sé áreiðanlegt og ég er fullviss um að þeir hafi ekki beitt sér á nokkurn einasta máta til þess að hlífa frænku sinni, enda ekki nokkur einasta ástæða til þess. Það hefði verið bara skelfilegt. Skelfilegt fyrir mig og skelfilegt fyrir þá, held ég. Svona mál verða að ganga fyrir sig.“

Hún segist glöð yfir því að málið hafi gengið sinn gang og fengið þessa niður­stöðu; hún sé viss um að niður­staðan hafi verið rétt.

„Og ég er svona að velta því fyrir mér af hverju er alltaf verið að taka þetta upp aftur.“

Hvað heldur þú? 

Séra Auður Eir lækkar róminn. „Fólk hefur svo gaman að þessu.“

Hún vill vita hvort blaða­maður treysti ekki dóms­niður­stöðunni.

Blaða­maður bendir séra Auði Eiri á, sem hún veit, að vistheimila­nefnd taldi í skýrslu sinni, eftir úttekt, rann­sóknir og viðtöl, að líklegra en ekki hafi verið að stúlkurnar á Bjargi hafi mátt þola ofbeldi og illa meðferð meðan þær dvöldu þar. Séra Auður Eir spyr hvaðan sú setning komi, sem blaða­maður svarar sem er, að komi úr skýrslu vistheimila­nefndar.

„Já, frá Róbert Spanó. Já. Takk fyrir að segja þetta.“

Blaða­maður furðar sig á þökkunum.

Hvað áttu við?

„Vegna þess að fyrir mér er þetta svo lögfræðileg spurning, hvort vistheimila­nefnd hefur lögfræði­legan rétt til að vefengja niður­stöðu dóms. Þetta er lögfræðileg spurning. Gífurlega alvarleg spurning. Ég bara þakka þér hjartanlega fyrir að segja þetta.“

Blaða­maður bendir á rannsóknar­vinnu vistheimila­nefndar og það að tekin hafi verið viðtöl við málsaðila; forstöðu­konuna á Upptöku­heimilinu, starfs­fólk, séra Auði Eiri sjálfa, við konur sem dvöldu á Bjargi.

„Þetta er frelsi.“

Séra Auður Eir brosir allt í einu breitt.

„Takk.“

Hún teygir hand­leggina út hvorn í sína áttina á borðinu sem við sitjum við og hallar höfðinu aftur á bak. Hún hleypir út andar­drætti, eins og hún sé fegin. Svo lítur hún aftur á blaðamann og klappar höndunum saman.

Hún segir það allt í lagi að blaða­maður viti ekki hvers vegna hún þakki honum fyrir með slíkum tilþrifum.

„Ég er að þakka þér fyrir það að hafa trú á vistheimila­nefnd, frekar heldur en dómi héraðs­dóms.“

Hún flissar.

Blaða­maður bendir séra Auði Eiri á, þótt líklega sé það óþarfi, að hægt sé að taka mál upp aftur síðar ef rökstudd ástæða þyki til þess.

„Fínt, fínt, fínt. Ég þarf ekki… Þetta er bara fínt, takk fyrir bara. Ég segi bara takk innilega fyrir.“

„Þær eru allar að segja ósatt“

Blaða­maður ber það upp við séra Auði Eiri að konurnar haldi ásökunum sínum til streitu, öllum þessum árum síðar.

Eru þær allar að segja ósatt?

„Þessar ásakanir sem þú last fyrir mig eru rangar.“

Þannig að þær eru allar að segja ósatt?

„Þær eru allar að segja ósatt.“

Aðspurð hvort hún sjái eftir einhverju segir hún svo ekki vera.

„Nei. Það held ég ekki. Ég gæti nú kannski ekki alveg sungið eins og Edith Piaf, „Non, je ne regrette rien“. “

Viðtalið, ásamt frásögn Sonju af Bjargi, má finna í nýjasta tölublaði Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Honum er lýst sem ástsælum samstarfsmanni og kærleiksríkum fjölskyldumanni
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Samanburðurinn á tekjuskiptingu byggist á Gini-stuðlinum

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram