Fyrirsætan vinsæla Amber Rose hefur ekki svo gott að segja af þeim karlmönnum er hún hefur kynnst náið; svo slæm er reynslan að hún segist ætla vera einhleyp það sem eftir er:
„Ég vil ekki deila húsi eða lífi með neinum. Ég vil ekki neinn í kringum nema börnin mín. Mig langar ekki að stunda kynlíf, það er ógeðslegt. Ég vil það ekki,“ sagði Rose á vef People.
Amber Rose á tvö börn og nokkuð skrautlega sögu að baki; átti hún til að mynda í tveggja ára sambandi við tónlistarmanninn Kanye West; hún var gift tónlistarmanninum Wiz Khalifaen það entist ekki lengi.
Nú vill hún bara fá frið fyrir karlmönnum og njóta sín með börnunum tveimur.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir