Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Hetjudáð á Snæfellsnesi – Bjargaði eins og hálfs árs gömlu barni úr sprungu: „Hágrét allan tímann”

Skjáskot frá Snæfellsnesi
Skjáskot frá Snæ­fells­nesi

Í baksýnis­spegli kvöldsins er rifjað upp frækilegt afrek trésmíða­nema þegar hann bjargaði eins og hálfs árs gömlu barni úr sprungu. DV fjallaði um málið þann 26.júlí árið 1985 en þar var meðal annars rætt við Sigurð Guðnason, 24 ára gamla trésmíða­nemann, sem kom barninu til bjargar:

„Ég rétt náði með vísi­fingri í aðra hönd drengsins en gat kroppað áfram þar til ég náði taki á hendinni allri,” sagði Sigurður í samtali við DV en litli drengurinn slapp ómeiddur:

„Sprungan var mjög þröng, svona um 30 sentí­metrar og mjókkaði niður,” sagði hann.

Sigurður var á þessum tíma í björgunar­sveitinni á Hellu og svo vel vildi til að hann sá um sigdeildina þar ásamt tveimur öðrum: 

„Ég setti reipi strax um mittið og gerði tvær tilraunir til að troða mér niður en það gekk ekki. Loks ákvað ég að fara með höfuðið á undan og það dugði.”

Samkvæmt frétt DV var móðirin á staðnum, sem aðstoðaði Sigurð:

„Móðir drengsins stóð á sprungu­brún og hélt um reipið ásamt annarri konu og manni er var á ferðalagi þarna um. Faðir drengsins og verk­stjóri í Lóran­stöðinni voru á meðan að útbúa áhald til að krækja í drenginn en ekki var reiknað með að neinn kæmist niður að honum.‘‘

Björgunin gekk vel fyrir sig, en Sigurður þurfti að draga djúpt andann til þess að komast niður í sprunguna:

„Síðasti spölurinn að drengnum var svo þröngur að ég varð að draga andann djúpt og mjaka mér áfram.”

Niðri beið drengurinn með höfuðið upp og bergið þéttings­fast að brjósti sér: 

„Drengurinn hágrét allan tímann, hann róaðist samt örlítið er ég spjallaði við hann, sagði honum að vera rólegum, þetta myndi allt bjargast.”

Er Sigurður náði taki i hönd drengsins kippti hann vel í, svo fastur var drengurinn: 

„Hann losnaði og ég náði í báðar hendurnar. Við vorum síðan dregnir upp.”

Móðir drengsins, Sólrún Jóns­dóttir, sagði í samtali við DV að þau hafi setið og notið veður­blíðunnar þegar hún, og faðir drengsins sáu hann skyndi­lega detta niður:

,,Við vorum alveg granda­laus, höfðum ekki hugmynd um sprunguna,” sagði hún en atvikið átti sér stað á Öndverðarnesi við Snæfellsnes.

Faðir drengsins reyndi sjálfur að fara ofan í sprunguna en fór og leitaði hjálpar þegar það gekk ekki. Litli drengurinn komst ómeiddur upp úr sprungunni og var orðinn hress og kátur þegar DV ræddi við móðurina:

„Einu meiðsl hans voru smá skrámur í andliti,” sagði hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim