Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Jón Hjaltason: „Það virðist bara eiga að afgreiða, dæma og krossfesta“ – Inga: „Ömurleg staða“

Jón Hjaltason sagnfræðingur.
Jón Hjalta­son sagn­fræð­ingur.

Formaður Flokks fólksins, Inga Sæland, sagði í samtali við RÚV alla í stjórn flokksins vera harmi slegna vegna frásagna kvenna sem skipuðu sæti á lista flokksins í bæjar­stjórnar­kosningunum á Akureyri fyrr á þessu ári.

Inga Sæland.

Komið hefur á daginn að konurnar sem skipuðu annað, fjórða og fimmta sæti á lista Flokks fólksins segjast hafa verið hunsaðar og lítilsvirtar af karla­forystu flokksins á Akureyri sem og aðstoðar­mönnum þeirra.

„Það er ömurlegt að vera komin í þessa stöðu að þurfa að vera að fjalla um svona­lagað þegar við unnum stórkost­legan sigur á Akureyri.“

Inga sagði að ekki sé búið að taka ákvörðun hvort karl­mönnunum sem ásakaðir eru verði vísað úr flokknum; einnig að málið sé yfirgrips­mikið og að stjórn flokksins sé með mikið magn af gögnum sem eigi eftir að fara ítarlega yfir.

„Eitt er alveg víst að við munum alltaf standa með þolendum ef það er niður­staðan.“

Flokkur fólks­ins – fram­bjóð­endur á Akureyri í vor.

Einnig kom fram í sömu frétt RÚV að sagn­fræðingurinn Jón Hjaltason, sem skipaði þriðja sæti á lista flokksins í vor segir þá Brynjólf Ingvarsson, oddvita og bæjar­fulltrúa flokksins á Akureyri, ætla að fara fram á lögreglu­rannsókn vegna málsins.

„Við viljum fá að vita um hvað ræðir og hverja ræðir. Því það kemur í rauninni ekki fram, þótt það megi náttúru­lega lesa á milli lína, að það eru karl­pungarnir á listanum sem eru þarna að brjóta af sér. Þá er ekkert um marga að ræða. Þótt að við séum ekki nefndir á nafn er greinilegt að spjótunum er beint gegn okkur. Okkar hlið skal ekki koma fram með einu né neinu. Það virðist bara eiga að afgreiða, dæma og kross­festa.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“