Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Sjúkraflugvélin sem hvarf – Tíu börn urðu föðurlaus þetta kvöld

Snemma árs 1966 óraði dreng nokkrum á Norðfirði ekki fyrir því að hættu­legur leikur hans með sprengjur ætti eftir að setja af stað atburðarás þar sem tveir fimmbarna feður myndu stuttu síðar láta lífið og aldrei finnast.

Það var þann 18. janúar að tveir flugmenn Flugsýnar, þeir Sverrir Jónsson og Höskuldur Þorsteinsson lögðu af stað í sjúkra­flug frá Reykja­víkur til Norð­fjarðar í slæmu veðri. Drengur nokkuð hafði fengið stálflís í augað er hann lék sér með sprengjur. Þegar flug­mennirnir sem báðir höfðu mikla reynslu af flugi, nálguðust Norðfjörð hefur eitthvað komið fyrir því flug­umferða­stjórn missti sambandi við flug­vélina en eftir heljarinnar leit fannst björgunar­vesti í fjöru og olíubrák í sjónum.

Þessi mynd var tekin er Beechcraftflugvél Flug­sýnar er hún kom í fyrsta sinn til Nes­kaup­staðar. Flug­stjóri í þeirri ferð var Sverrir Jónsson, sem einnig var með vél­ina er hún týnd­ist, og sést hann á mynd­inni ræða við Bjarna Þórð­ar­son þáver­andi bæj­ar­stjóra í Nes­kaup­stað.

Hér fyrir neðan má lesa brot úr umfjöllun Þjóð­viljans um málið á sínum tíma:

Þetta er lítil tveggja hreyfla flugvél af Beechcraft gerð og var fyrsta flugvélin, sem notuð var í Norð­fjarðar­flugi og ber einkennis­stafina TF-AIS. Beiðni hafði komið frá Neskaupstað í fyrra­kvöld að sækja dreng til flutnings á sjúkrahús og hafði hann fengið stálflís í auga við sprengingar­leik. Flugvélin lagði af stað kl. 18.30 frá Reykja­víkur­flugvelli og flaug fyrst til Egils­staða vegna ábendingar um slæm veður­skilyrði og tók flugvélin þar benzín til fimm klukku­stunda flugs. Þegar fréttist af upprofi á Neskaupstað, þá lagði flugvélin af stað frá Egils­stöðum og mun brott­farartími þaðan hafa verið kl. 21.40 og er áætlað flug þaðan um fimmtán mínútur og stóðst sú tíma­setning, þar sem flugvélin flaug yfir aðflugs­vita á Norðfirði kl. 21.56. Þá var haft samband við flug­manninn kL 22.12 og bjó þá flug­maðurinn sig undir að lækka flugið til aðflugs og lendingar á vellinum. Þetta er það síðasta sem spurzt hefur til vélarinnar og gerði um þetta leyti dimmt él inn Norð­fjarðar­flóann. Þraut­reyndir flugmenn hafa verið spurðir um líkleg viðbrögð undir svona kringum­stæðum og telja þeir líklegt,að flug­maðurinn hafi tekið stefnuna til hafs og hafi átt að hækka sig í örugga lofthæð og tekið stefnuna á næstu örugga flughöfn. Eru þarna þver­hníptar fjalls­hlíðar til beggja hliða. Erfitt er þó að leiða getum að afdrifum flug­vélarinnar. Þegar flugvélin gaf sig ekki fram á nýjan leik, þá var þegar haft samband við flug­radíóið á Egils­stöðum og tilkynntu þeir flugumferðarstiórn í Reykjavík um biðina og fengu þeir tilkynninguna nálega samstundis. Þeir höfðu þegar samband við Flug­björgunar­sveitina hér í Reykjavík og voru lagðir af stað með flugvél frá Flug­félagi Íslands kl. 22,53. — voru það 20 flug­björgunar­menn undir stjórn Sigurðar Þorsteins­sonar, varð­stjóra cg hefur hann stjórnað leitinni fyrir austan. Þetta er talin úrvals­sveit og vön klifri í fiallaklettum og flugu þeir fyrst til Egils­staða og fóru þaðan með bílum til Neskaupstaðar yfir Oddsskarð. Um nóttina höfðu allar land­símastöðvar opið frá Þórshöfn -að norðan og allt suður að Lóni og hófst þegar viðbúnaður víða um nóttina til leitar.

Nokkrum dögum seinna birti Einherji grein um leitina að flug­vélinni:

Flugvél týnist með tveim mönnum

Lítil tveggja hreyfla flugvél, frá Flugsýn, týndist aðfara­nótt 18. jan. sl. Fór hún í sjúkra­flug frá Reykjavík til Norð­fjarðar. Veður var slæmt, og gat flugvélin ekki lent á Norðfirði. Flaug hún þá til Egils­staða og tók benzín. Flaug síðan aftur til Norð­fjarðar og ætlaði að reyna að lenda. Síðast heyrðist til vélarinnar, er hún tilkynnti, að hún ætlaði að reyna lendingu, en síðan hefur ekkert til hennar spurzt. Hafin var víðtæk leit, sem þátt tóku í margar sveitir á landi, flugvélar úr lofti og skip á sjó. Má segja, að leitað hafi verið um allt Austur-, Suður- og Norður­land, og meðfram strönd Aust­fjarða. Leitað var í fimm daga, en árangurs­laust. Fundizt hefur björgunar­vesti úr flug­vélinni, rekið norðan Gerpis, og því talið víst, að flugvélin hafi hrapað í sjó á þeim slóðum.

Síðan hefur ekkert til flug­vélarinnar spurst enda greipar Ægis djúpar og dimmar.

Sverrir Jónsson og Hösk­uldur Þor­steins­son

Með flug­vélinni voru tveir menn: Sverrir Jónsson, aðal flug­stjóri Flugsýnar. Hann var kvæntur Sólveigu Þorsteins­dóttur og lét eftir sig 5 börn. Og Höskuldur Þorsteinsson, kennari flug­skólans, sem lét eftir sig konu, Krist­fríði Krist­marsdóttur og 5 börn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim