Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Rukkaði dóttur sína fyrir að passa barnabarnið „Er ég sú leiðinlega?“

Myndin tengist ekki greininni beint
Myndin teng­ist ekki grein­inni beint

Foreldrar treysta oft á fjöl­skyldur sínar þegar kemur að barna­pössun. Flestar ömmur og afar passa barna­börnin sín án endur­gjalds en það á þó ekki við um alla ef marka má frétt breska miðilsins Mirror. Þar segir einstæð móðir frá því að móðir hennar hafi tekið upp á því að krefjast launa fyrir barna­pössunina nýverið.

„Við móðir mín eigum mjög gott samband. Hún hefur líka passað dóttur mína oftar en ég get talið ókeypis. Eina skiptið sem ég hef nokkurn tíma borgað henni fyrir pössun var þegar ég þurfti að fara í vinnuferð eða eitthvað álíka og ég þurfti að fá hana til að passa dóttur mína í að minnsta kosti viku. Verðið var £91 á dag, sem mér finnst mjög sann­gjarnt,‘‘ sagði móðirin og bætti við: „Í síðustu viku spurði ég mömmu hvort hún gæti fylgst með dóttur minni í nokkra klukku­tíma á meðan ég sinnti einhverjum erindum. Hún tilkynnti mér þá að hún myndi ekki halda áfram að passa dóttur mína nema ég fari að borga henni fyrir hverja klukku­stund, ekki bara fyrir löngu ferðirnar.‘‘

Móðurinni segist hafa brugðið mjög við tillöguna og neitað að greiða henni fyrir pössun. Því næst hafi þær lent í hávaða­rifrildi vegna málsins og hafi hún að lokum ákveðið að taka dóttur sína með til þess að sinna erindunum. Síðar um daginn hitti móðirin vinkonu sína sem spurði hana hvers vegna dóttirin hefði ekki farið í pössun til ömmu sinnar. Eftir að móðirin sagði vinkonunni frá rifrildinu tók hún upp hanskann fyrir ömmuna og tjáði henni að það væri sjálf­sagður hlutur að greiða henni fyrir pössun. Að lokum sagði móðirin:

„Ég man aldrei eftir því að amma mín hafi beðið um að fá borgað fyrir að fylgjast með mér. Það hefði verið óskiljanlegt en hún hafði passað mig þar til ég var unglingur svo ég var nokkurn vegin meðvituð. Ég veit það ekki… Er ég sú leiðinlega í aðstæðunum?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt