Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Telur þingheim hafa brenglaðar hugmyndir um fjölmiðla: „Hið opinbera duglegt að auglýsa þar sjálft“

Jakob Bjarnar Grétarsson.
Jakob Bjarnar Grét­ars­son.

Blaða­maðurinn öflugi Jakob Bjarnar Gretarsson segir að „Þing­heimur virðist hafa stórkost­lega brenglaðar hugmyndir um fjölmiðla. Í orði þykjast þingmenn hafa áhyggjur bágborinni stöðu þeirra og jafnvel að þeir séu ein stoð lýðræðis. (Sem þeir eru ef allt er eðlilegt.)“

Spyr:

„En hvernig eru gjörðirnar?“

Svarar:

„Þingið skipar einhverja fjölmiðla­nefnd sem telur það sitt helsta hlutverk að tyfta fjölmiðla, sekta og leggja stein í götu þeirra. Þingið gerir ekkert í því að taka RÚV af auglýsinga­markaði.“

Bætir við:

„Þingið gerir ekkert til að stemma stigu við flæði auglýsinga­fjár á samfélags­miðla, þvert á móti er það hið opinbera duglegt að auglýsa þar sjálft sem og stjórn­mála­flokkarnir sjálfir?!

Svo rík er hin samfélags­lega ábyrgð á þeim bænum. Þeir ákveða að styrkja fjölmiðla með beinum hætti sem er umdeilanlegt. Til dæmis vegna aðhalds­hlutverks. Illt er fyrir fjölmiðla að eiga eitthvað undir þeim sem sem vilja stífa þeim úr hnefa. Upphæðin er hins vegar snautleg og breytir litlu.

En prinsippið er farið, vatn á myllu gapuxa sem finna sig í því að atyrða fjölmiðla og æpa þannig gegn eigin hagsmunum.“

Jakob vísar í grein á vefmiðlinum Kjarnanum sem fjallar um styrki frá ríkis­sjóði til fjölmiðla; hann er ekki sáttur:

„Og eins og til að bíta hausinn af skömminni koma þessi ósköp:

Ef það á að vera hægt að réttlæta þessa fjölmiðla­styrki hljóta þeir að vera á þeim forsendum að verið sé að styrkja lýðræðið með hlutlægum frétta­flutningi skv siða­reglum BÍ. Sporna við fæti gegn upplýsinga­óreiðu og stuðla þannig að upplýstri afstöðu.“

Að lokum færir Jakob í tal að „styrk­veitingarnar fóru hins vegar á núll einni yfir í að verða ógeðslegar.

Á lista yfir styrkþega eru ýmsir sem eru langt frá því að snerta við þessu markmiði og nú hefur Bjarkey og co ákveðið að nota þetta kerfi til að kaupa sér atkvæði úti á landi, þar sem atkvæðin þar vega þyngra. Þetta er eitthvað svo innilega glatað að manni fallast hendur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Frétt

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Ráðherrar segja þróun heimsmála og breyttar áskoranir kalla á sterkari borgarlega innviði. Samningarnir voru undirritaðir að loknum fundi þjóðaröryggisráðs.
Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis