Þessi dægrin velja margir landsmenn að leggja land undir fót og flatamaga á sólarströndum. Enda vetrarveðrið orðið langþreytt og helmingur þjóðarinnar þjáist af D-vítamínskorti.
Bríet Ísis Elfar, hinn sívinsæli söngfugl er á meðal þeirra farfugla. Á Instagram-reikningi sínum deilir hún með fylgjendum sínum myndskeiði þar sem hún stendur á sundlaugabakkanum og er djúpt sokkin í lestur bókar. Söngkonan virðist fullkomlega ómeðvituð um ljósmyndarann.

Ekki kemur fram hver hinn sólríki áfangastaður er, en næsta er víst að hálf þjóðin dreymir um að vera þar.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir