Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Þegar Elísabet II. hitti Jón Baldvin aftur: „Oh John Baldwin. Much better to you see you now“

Jón Baldvin Hannibalsson.
Jón Baldvin Hanni­bals­son.

Glúmur Baldvinsson segir skemmtilega sögu af kynnum Elísabetar fyrrum drottningar Bretlands, sem lést í gær, og föður Glúms, Jóns Baldvins Hannibaldssonar fyrr­verandi ráðherra.

„Vissulega var drottningin alþýðleg en hertoginn hinn mesti hroka­gikkur og oflát­ungur. Faðir minn þá utan­ríkis­ráðherra, fékk það hlutverk að ferðast með drottningu og fræða um land og þjóð.

Í upphafi datt honum ekki til hugar að hún hefði snefil af áhuga á kotþjóðinni en þar kom hún honum svo á óvart að hann hafði ekki undan að svara spurningum um allt frá upphafi landnáms, um hernað víkinga á Bretlands­eyjum, til þorska­stríðanna og sögu þessara undarlegu framsóknar­fjóskalla sem öllu réðu.

Þau óku svo ásamt Filippusi hertoga að Nesja­valla­virkjun. Það var stinnings­haustkuldi. Drottningin vildi ólm innæi virkjun en Hertoginn spurði: nennirðu þessu? Og sat kjurr í limmósínunni.

Svo þau fóru án hans.

Faðir minn var kvefaður allan þennan tíma með flensu. Og svo fór drottningar­fólkið til síns heima.

Nokkrum mánuðum síðar var einhver utan­ríkis­ráðherra­fundur í Lundúnum þar sem faðir minn gerði allt vitlaust og seinkaði dagskrá með því að gera kröfu um yfir­lýsingar varðandi bann á kjarnorku­mengun Rússa í ballar­hafi og svo leiðindi varðandi skiptingu Kýpur. Varð hann þar með óvin­sælasti maðurinn á svæðinu. Því þetta röfl hans seinkaði dinnernum í Buckingham Palace.

Svo fer kallinn á hótel og klæðir sig í leigðan smóking, black tie á hástéttar­ensku og tuxedo á amerísku, og tókst að rífa slaufuna eða hálstauið er hann reyndi að hnýta það.

Því þurfti hann að ganga hálf ámótlegur inní höllina reynandi að láta á engu bera og halda slaufunni fastri beygjandi sig og bugtandi í átt að hennar hátign.

Þegar faðir minn gekk svona á sig kominn fram fyrir hennar hátign sagði Elísabet:

John Baldwin what is the matter with you? Are you still suffering from cold?

Faðir minn svaraði hnípinn. No, your Royal Highness it is the bloody bow tie.

Þá skipti engum togum að Elísabet smellir fingrum og allar hirð­meyjar hennar hátignar og breska heims­veldisins söfnuðust að föður mínum og drógu afsíðis og saumuðu slaufuna saman.

Gekk hann svo aftur hnarreistur fram fyrir hennar hátign og hún segir:

Oh John Baldwin. Much better to you see you now. Með bros á vör.

Lýkur þar með þessari sögu. Sel ég hana miklu dýrar en ég keypti hana.

Glúmur er frá­bær sögu­maður, enda húmor­inn alltaf innan seil­ingar. Mynd / Sig­tryggur Ari Jóhanns­son

Lengi lifi drottningin! Því hér endar saga drottninga. Því hún var drottning drottninga og sú eina sanna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Vissu ekki að 1.468 skilaboð hefðu varðveist
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

„Við syrgjum sjómennina þrjá sem létu lífið í sjóslysinu í gær“

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum