Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Íslenska ríkið sýknað af millj­arðs króna kröfu hóps fyrr­ver­andi land­eig­enda á Geys­is­svæðinu

Íslenska ríkið var í gær sýknað af rúmlega milljarða króna kröfu hóps fyrr­verandi land­eigenda á Geysis­svæðinu.

Kröfunni hafði verið hafnað fyrir héraðs­dómi, en áfrýjendur og íslenska ríkið áttu land í óskiptri sameign á Geysis­svæðinu.

Í byrjun október árið 2016 sömdu áfrýjendur og ríkið um kaup ríkisins á eignar­hlut hinna og stóð hann ríkinu til ráðstöfunar frá þeim degi.

Í kaup­samningnum var ákveðið að leggja það í mat matsmanna að finna sann­gjarnt kaupverð land­spildunnar og samkvæmt yfir­matsgerð frá apríl árið 2019, komst meirihluti yfir­matsmanna að þeirri niður­stöðu að sann­gjarnt kaupverð fyrir landið væri 1.009.278.000 krónur.

Í niðurstöðu­kafla mats­gerðarinnar er sagt að ef kaup­verðið væri fram­reiknað miðað við breytingar á byggingar­vísitölu frá kaup­samnings­degi til dagsetningar yfirmats væri kaup­verðið alls 1.100.113.020 krónum.

Einnig kom þar fram að kaup­verðið skyldi bera almenna vexti samkvæmt lögum um vexti og verð­tryggingu frá kaup­samnings­degi til greiðslu­dags.

Áfrýjendur höfðu byggt mála­tilbúnað sinn á því að í niður­stöðu meirihluta yfir­matsmanna fælist að kaupverð land­spildunnar yrði verðbætt og vaxta­reiknað með þessum hætti.

Ríkið væri þá bundið við þá niður­stöðu samkvæmt ákvæðum kaup­samningsins.

Í dómi Lands­réttar kemur fram að í kaup­samningi aðila hefði ekki verið kveðið á um greiðslu vaxta eða verðbóta af kaupverði – en fyrir­sjáanlegt hefði verið við frágang kaup­samningsins að umtalsverður tími kynni að líða þar til endanleg matsgerð lægi fyrir.

Talið var að ef áfrýjendur teldu sig eiga rétt til greiðslu verðbóta eða vaxta hefði þeim borið að eiga frumkvæði að því að kveðið yrði á um það í samningnum og hið sama var talið gilda um viðmiðunar­tíma verð­matsins; ef þeir teldu að hann ætti að vera annar en afhendingar­tími land­spildunnar.

Eins og málinu væri háttað hefði verið óvíst hvort samkomulag um slíkt hefði náðst, ef á það hefði reynt.

Sýkna héraðs­dóms var því staðfest.

Krafa þessi var gerð í nafni Suður­gafls ehf., Sigríðar Vilhjálms­dóttur, Þóris Sigurðs­sonar ehf., Hrannar Greips­dóttur, Sigurðar Hauks Greips­sonar, Minningar­sjóðs Ársæls Jónssonar, Svövu Lofts­dóttur, Mörtu Lofts­dóttur, Péturs Guðfinns­sonar, Margrétar Sigríðar Páls­dóttur og Ingu Ingibjargar Guðmunds­dóttur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Þorðu ekki að vera heima og fluttu sjö sinnum
Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Þá var einnig tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna