Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Köld kveðja til látinnar drottningar: „Þjálfuð í að ganga með þungar orðabækur á hausnum“

Guðmundur Andri Thorsson
Guð­mundur Andri Thorsson

Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur og vara­þingmaður Samfylkingarinnar minnir fólk á ljóta sögu konungs­veldisins í Englandi í nýrri færslu á Facebook. Þar líkir hann konungs­fjöl­skyldunni bresku við sveita-aðal úr Eyjafirði.

„Elísabet Englands­drottning var aldrei mín drottning og almennt talað er ég lítill drottningar­maður, hvað þá kónga. Þetta eru tákn­myndir valds og eigin­leika sem samkomulag ríkir um að haldnir skuli í heiðri. Skyldu­rækni í tilviki hennar, og allir dást að henni þó að minna fari fyrir því að hugleiða að hverju trúnaðurinn beindist: samveldinu, heims­veldinu, völdum og ítökum Englendinga um allan heim, sem er nú ekki saga sem sú þjóð hefur ástæðu til að vera stolt af. Hún var sameiningar­tákn þess sem var liðið undir lok – til allrar hamingju,“ skrifaði Guðmundur Andri í færslu sinni.

Í seinni hluta færslunnar líkir hann konungs­fjöl­skyldunni við sveita-aðal úr Eyjafirði sem uni sér best í fjósinu.

„Á meðan ég entist til að horfa á fjölskyldu­dramað um hana sýndist mér þetta fólk vera fremur dugnaðar­legur sveita-aðall, kannski eins og fólk frá myndar­býli í Eyjafirði sem unir sér best á stíg­vélunum úti í fjósi en kann sig líka í hásölum valdsins. Fólk sem lét dagana líða við refa­veiðar og útreiðar og tedrykkju með tilheyrandi hjali, forpokað en með vissan beittan húmor. Pompið og praktin og prjálið sem fylgir þessum menningar­leifum verður erfiðara að réttlæta þegar það beinist að eftir­lifandi meðlimum því að Elísabetu fylgdi reisn og hún bar alltaf skartið vel, teinrétt og augljós­lega þjálfuð í að ganga með þungar orðabækur á hausnum og masa við alls konar fólk af þeirri fjarhuga vinsemd sem hátignar­fólk þarf að temja sér.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Vissu ekki að 1.468 skilaboð hefðu varðveist
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

„Við syrgjum sjómennina þrjá sem létu lífið í sjóslysinu í gær“

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum