Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Eggert hrækti á lögreglumann og bauðst til að skyrpa á annan

„Fuck you maður,“ sagði Eggert við lögreglu­mennina við handtöku

Eggert Arnar var að skemmta sér á Cafe Petite
Eggert Arnar var að skemmta sér á Cafe Petite Þótti hafa sýnt lög­reglu­mönnum ógn­andi hegðun var hand­tek­inn í kjöl­farið Mynd: Veitingageirinn

Eggert Arnar Magnússon hefur verið dæmdur í þriggja mánaða fangelsi en dómurinn er skilorðs­bundinn til tveggja ára. Eggert var dæmdur fyrir að hrækja á lögreglu­mann og var málið tekið fyrir í Héraðs­dómi Reykjaness.

Í dómnum kemur fram að lögreglu­menn hafi þurft að hafa afskipti af Eggerti þegar hann var að skemmta sér á Cafe Petite í Reykja­nesbæ sumarið 2023. Þeir hafi verið beðnir að vísa Eggerti út af staðnum en samkvæmt lögreglunni lét hann öllum illum látum en fór að lokum. Hins vegar hafi hann snúið aftur á vettvang þegar lögreglan var að yfirgefa svæðið

Lögreglan endurtók skipun sína um að Eggert ætti að yfirgefa svæðið en hann var ekki til í það og sýndi ógnandi hegðun að sögn lögreglu­manna. Hann var í kjölfarið hand­tekinn og hrækti á lögreglu­mann þegar hann var að festa sætisól hans.

Eggert neitaði sök fyrir dómi þrátt fyrir að upptaka úr búkmyndavél væri spiluð fyrir hann þar sem Eggert heyrist segja „Ég hrækti á þig“ og hrákuhljóð. Eggert telur að mögulega hafi hrákuhljóðið komið frá fólki utan bílsins. Hann sagðist einnig ekki vera fær í íslensku sökum þess að hafa búið í Svíþjóð meirihluta ævi sinnar og hann hafi verið að bulla eitthvað. Mögulega hafi hann ætlað að segja „ég get hrækt á þig“.

Í dómnum er sagt að á upptökunni megi sjá ákærða snúa líkama sínum til hægri að lögreglu­manni A sem beygir sig að honum. Megi þá heyra ótvírætt hráka­hljóð frá ákærða og lögreglu­mann segja „æ“. Í kjölfarið heyrist lögreglu­maður B segja ákærða að hrækja ekki á þá og sést hráka­gríma sett á ákærða. Heyrist þá ákærði segja „aðeins meira til vinstri af því að ég hrækti á þig, sko“. Skömmu síðar megi heyra lögreglu­mann B segja í talstöð að „hann“ sé kominn inn í bíl með hráka­grímu, „hann hafi hrækt á [A]. Síðar megi heyra lögreglu­mann segja við ákærða að hann hafi hrækt á lögreglu­mann og ákærða svara „eiiii gerði það, fuck you maður, ég hræki á þig líka ef þú vilt það“.

Eins og áður segir var Eggert fundinn sekur og dæmdur í þriggja mánaða fangelsi og þarf að greiða sakar­kostnað upp á 569.440 krónur

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl
Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Innlent

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp