Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Ragga nagli missti heilsuna í London: „Það prumpar enginn regnbogum alla daga“

Ragga Nagli
Ragga Nagli Mynd: Aðsend

Sálfræðingurinn Ragga Nagli skrifar pistil á Facebook sem ber yfir­skriftina: þegar lífið gefur þér löngutöng á báðum.

„Kona fer til London í sex daga til að eyða tíma með fjöl­skyldunni, sérstak­lega 19 ára afmælis­degi „litla“ frænda. En þá ákveður alheimurinn að slá þig utanundir með rennblautri borðtusku og henda öllum plönum um skemmtilega viku lengst útí hafsauga.“

Ragga segir að „eftir aðeins tvo daga í ríki Kalla konungs byrjaði skrokkurinn að vera með dólg. Hiti, haus­verkur, ólympísk þreyta, bólgnir eitlar, stútfullt nef af slími, rakvéla­blöð í hálsinum, djúpur hryglu­hósti. Hausinn límdur á koddann í niðadimmu herbergi fyrir ljósfælin augu.

Eftir þrjá daga var brunað með Uber á Læknavakt í London.“

Hún nefnir að „glaðlegur og viðmóts­þýður indverskur læknir tók á móti Naglanum.

„Hello, you look lovely, with a beautiful smile“

Naglinn sem hafði ekki farið í bað í fjóra daga klædd í skítugar joggingbuxur, með hettu til að fela fituga hárlokka leit ALLS EKKI „lovely“ út, en hlýnaði samt við þessi orð læknisins.

Með vasaljós í kok var niður­staða Doktor Nasir að öllum líkindum streptókokkar, og Naglinn skundaði heim með sýklalyf í fyrsta skipti síðan í blautri barnæsku. Afmælis­degi frænda var eytt í bælinu með Para­setamól að horfa á löggur leysa sakamál í Chicagoborg.“

Ragga segir að „sálfræði­samtölum með fjölmörgum skjólstæðingum þurfti að slá á frest. Fyrir­lestur fyrir öðlingana hjá Amnesty þurfti að bíða því röddin er rám og hás eins og eftir fimm daga brekku­söng á Þjóðhátíð. En allt er á réttri leið og Naglinn gat loksins mundað sínar heittelskuðu járnstangir í ræktinni í morgun án mikilla vandkvæða. En sýndi þó sjálfri sér mildi og lækkaði þyngdir eða fækkaði endur­tekningum þegar þess þurfti við.

Það prumpar enginn regnbogum alla daga. Hindranir, vesen, ströggl og streita er víst hluti af lífinu. Enginn er með bleikan einhyrning í garðinum. Sólin skín ekki alla daga. Það valhoppa ekki allir í sænskum smábæ eins og í Astrid Lindgren bók. Það þarf að koma rigning til að mynda regn­bogann.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim