Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Siðmennt sækir á Kirkjuna: „Brauðhleifar Palestínumannsins til forna duguðu yfirnáttúrulega vel“

Inga Auðbjörg K. Straumland formaður Siðmenntar.
Inga Auðbjörg K. Straum­land for­maður Sið­menntar.

„Í Nýja Testamentinu segir frá því þegar Jesús fóðraði 5000 manns (og þegar ég segi manns, þá voru það víst 5000 karlar, því konur og börn virtist óþarfi að telja) með aðeins fimm brauðum og tveimur fiskum. Það var meira að segja nóg eftir og söfnuðu læri­sveinarnir afgöngum í heilar 12 körfur. Það er ansi ljóst að brauð­hleifar Palestínu­mannsins til forna duguðu yfir­náttúrulega vel, en jafnvel þó við tökum krafta­verkin út úr jöfnunni mætti gjarnan spyrja sig: Hvað er eitt brauð og hvað er einn fiskur?“ spyr Inga Auðbjörg K. Straum­land formaður Siðmenntar, siðrænna húmanista á Íslandi í nýrri grein.

Hún bendir á að „Siðmennt stekkur yfir 5000 félaga. Þjóðskrá Íslands gaf í gær út reglulegt frétta­bréf sitt, þar sem fjallað er um uppfærðar tölur úr skrá yfir trúfélags­aðild Íslendinga.

Samkvæmt nýjustu tölum hefur Siðmennt, félag siðrænna húmanista á Íslandi, nú farið yfir 5000 félaga í fyrsta skipti. Það er stórfelld aukning á stuttum tíma, en þegar Siðmennt var fyrst sett á skrá yfir lífs­skoðunar­félög landsins árið 2013 voru um 300 meðlimir á félaga­tali félagsins.

Þetta er því tæp sautján­földun á aðeins 9 árum,“ segir Inga og bætir við:

„Á sama tímabili hefur Þjóð­kirkja Íslands farið úr því að vera andlegt heimili 76% Íslendinga, í það að hafa aðeins 60% þjóðarinnar á félaga­skrá sinni. Það er því nokkuð ljóst að annað félagið hlýtur að vera í þó nokkurri tilvistar­kreppu, á meðan hitt félagið blómstrar og sópar til sín nýjum félögum sem líta á húmanísk gildi sem sín lífs­viðhorf.

Það er þó auðvitað gígantískur munur á milli félaga; annað hefur í sögulegu samhengi talið meirihluta þjóðarinnar, á meðan hitt er nýskriðið yfir 1%. En tölur Þjóðskrár um félags­aðild þessara tveggja lífs­skoðunar­félaga, annars kristilegs og hins verald­legs, byggjast þó einnig á gölluðum gögnum sem bera þess merki að kerfislæg forréttindi hafi skekkt þau í áraraðir. Þegar börn fæðast eru þau skráð, án heimildar foreldra, í það félag sem foreldrarnir tilheyra. Áður voru börn skráð lóðbeint í trúfélag móður, án þess að spyrja kóng, né prest, móður né barn. Þetta þýðir að áratugum saman hefur fólk verið skráð í það trúfélag fyrri kynslóða í fjöl­skyldu sinni án heimildar fólksins sjálfs, og það er aðallega eitt trúfélag sem græðir á því: Trúfélagið sem var algengast hjá téðum fyrri kynslóðum.“

Hún nefnir að „margt bendir þó til þess að tölurnar endur­spegli ekki raun­veruleg viðhorf landans. Siðmennt, með sitt staka prósent þjóðarinnar á félaga­tali sínu, sinnti 18% allra hjóna­vígsla sem fram fóru hjá trú- eða lífs­skoðunar­félögum árið 2019 (uppfærðari tölur því miður ekki aðgengilegar hjá Hagstofunni).

Sum gætu haldið að þetta skipti litlu máli. Að skráning Þjóðskrár á þessum viðkvæmu persónu­upplýsingum sé nú fyrst og fremst upplýsinga­söfnun. En það er ekki alveg svoleiðis, því að skipting fjármuna byggist á þessum upplýsingum. Og af því að gögnin eru gölluð getum við ekki verið viss um að skipting þessara sameiginlegu sjóða þjóðarinnar sé raun­verulega réttlát og samkvæmt vilja fólksins.“

Inga segir líka að „flestar kannanir sýna nefnilega að í gögnunum sé talsverð skekkja – að ekki öll sem tilheyra stærsta félaginu, Þjóð­kirkjunni, vilji endilega vera þar, eða séu yfirhöfuð meðvituð um það að þau tilheyri því félagi. Þannig væri á allan máta lang­réttlátast að núlla bara skráninguna á einu bretti og óska eftir því að fólk skrái sig aftur. Aðeins þannig myndi skráningin endur­spegla raun­verulegan vilja einstaklingsins – og þannig þjóðarinnar allrar.“

Og hún spyr:

„En hvað koma fiskarnir málinu við?“

Svarar:

„Jú, Jesús fóðraði fullt af fólki með fáeinum brauðum og fiskapari. Það er því ljóst að brauðin hans duga betur en önnur brauð. Og það sama á við þau brauð og fiska sem dreift er úr bast­körfum ríkis­sjóðs til lífs­skoðunar­félaganna. Flest fá félögin brauð og fiska í hlutfalli við stærð þess sem telur sig eiga samleið með félaginu. Öll nema eitt. Eitt félagið fær nefnilega nánast tvöfölda úthlutun; ekki bara sóknar­gjöld, heldur auka­framlag sem telur milljarða, sem byggist á versta samningi sem ríkið hefur nokkurntíman gert og allar líkur á að sé í raun löngu búið að greiða upp.

Það er því nokkuð ljós að rétt eins og fyrir tvö þúsund árum, þá eru enn í dag sum brauð stærri en önnur brauð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Vissu ekki að 1.468 skilaboð hefðu varðveist
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

„Við syrgjum sjómennina þrjá sem létu lífið í sjóslysinu í gær“

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum