Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Gunnar segist ekki gráðugur en biðst afsökunar á bréfinu

Gunnar Þór Gíslason, formaður stjórnar Ölmu leigu­félags, segir það ekkert með græðgi að gera að félagið hafi hækkað leigu 65 ára konu um 75 þúsund krónur á mánuði. Leigu­félagið hefur verið gagnrýnt harðlega undan­farið eftir að Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, vakti athygli á máli konunnar. Henni var tilkynnt skyndi­lega að leiga hennar myndi hækka úr 250 þúsund í 325 þúsund krónur á mánuði um áramótin.

Gunnar Þór biðst afsökunar í aðsendri grein sem birtist í Frétta­blaðinu í morgun hvernig konunni var tilkynnt um hækkunina. Hann stendur þó fast á því að ekkert óeðlilegt sé við það að hækka leiguna. Leiguverð konunnar hafi verið lágt vegna þess að samningur hennar var stofnaður í miðju COVID. Félagið hafi einungis verið að leiðrétta það

Hér fyrir neðan má lesa pistil Gunnars í heild sinni.

Um allan heim ræðst fasteigna­verð af byggingar­kostnaði annars vegar og markaðs­verði hins vegar. Að koma sér upp þaki yfir höfuðið er í raun ævistarf hér á Íslandi fyrir flest fólk og leiðangurinn því miður mikil óvissu­ferð vegna verðbólgu og vaxta­umhverfis. Nánast rússíbana­reið. Enginn fettir samt fingur út í það að verð íbúðar­húsnæðis ráðist af markaðnum á hverjum tíma – og þar geta sveiflurnar verið býsna miklar.

Sumum vex þessi óvissa í augum og kjósa frekar að vera á leigu­markaði. Aðrir velja leigu­markaðinn af því þeir vilja ekki festa sig niður og enn aðrir hafa ekki fjárhagslegar aðstæður til þess að ráðast í íbúðakaup og fara þannig tilneyddir á leigu­markaðinn. Á honum gilda eðlilega sömu lögmál og við fasteigna­kaup. Leiguverð hlýtur alltaf að fylgja kostnaði og markaði. Rétt eins og kaupverð íbúða. Þegar grannt er skoðað er annað óhugsandi. Og hefur ekkert með græðgi að gera heldur eðlilega framlegð af því fjármagni sem bundið er í rekstrinum.

Íbúða­félagið Alma rataði í fjölmiðla í síðustu viku vegna 30% hækkunar á húsaleigu til eins viðskipta­vinar. Sumir, jafnvel fjöl­miðlar, hafa talað um þessa hækkun í fleirtölu og gefið þannig í skyn að Alma hafi hækkað húsaleigu til allra viðskipta­vina sinna um 30%. Það er alrangt. Þær hækkanir sem hluta af leigjendum okkar var tilkynnt um að kæmu til framkvæmda í upphafi næsta árs voru að meðaltali innan við tíu prósent. Þetta tiltekna tilfelli kom upp vegna þess að verið var að uppreikna og endurnýja samning sem upphaf­lega var stofnað til þegar leiguverð í miðbænum var lágt í miðjum kórónu­veiru­faraldrinum. Sá veruleiki er allt annar í dag.

Enda þótt breytingin hafi verið fullkomlega eðlileg aðlögun að gjör­breyttu markaðs­verði í miðborginni skal, eftir nánari skoðun, fúslega viðurkennt að standa hefði mátt með nærgætnari hætti að tilkynningunni um nýtt leiguverð þegar hækkun var jafn mikil og raun bar vitni. Á því er beðist afsökunar. Um leið vil ég upplýsa að við höfum nú þegar brugðist við vegna þessara mistaka og umræðunnar sem skapaðist í kjölfarið. Við höfum endur­skoðað verkferla okkar þannig að við munum héðan í frá setja hækkunum leigu­verðs við endurnýjun samninga ákveðin mörk, bæta upplýsinga­gjöf okkar og samskipti við viðskipta­vini og auka sveigjanleika þeirra leigutaka okkar sem vilja leita á önnur mið.

Samfélag okkar hefur byggt upp sterkt félagslegt kerfi til þess að tryggja þeim húsaskjól sem ekki ráða við ríkjandi markaðs­aðstæður. Til staðar eru líka óhagnaðar­drifin leigu­félög sem njóta stuðnings ríkis og sveitar­félaga og geta því boðið húsnæði á lægra verði en ella. Alma starfar hins vegar á frjálsum markaði og þarf að vera á samkeppnis­hæfu verði samhliða því að grund­valla rekstur sinn á eðlilegri afkomu. Það hefur reynst erfiður línudans í því óstöðuga efnahags­umhverfi sem ríkt hefur á Íslandi um langt skeið.

Lang­stærsti hlutinn af leigu­markaði íbúðar­húsnæðis á Íslandi er í höndum einstaklinga og verð­lagning þeirra ræðst af hinu einfalda lögmáli um framboð og eftir­spurn. Sérstakar skyldur við leigutaka eru oftast litlar sem engar og búsetu­réttur leigjandans afar takmarkaður. Leigu­umhverfinu fylgir þannig mikil og stöðug óvissa. Alma býður hins vegar upp á leigu­samninga til allt að fimm ára á markaðs­kjörum. Það þýðir að leigutakar geta gengið að því vísu að raunverð leigunnar hækkar ekki á þeim tíma.

Hlutverk fasteigna­félaga á leigu­markaði er, og verður, að festa leigu­úrræðin í sessi sem öruggan valkost þeirra sem af alls kyns ástæðum vilja ekki skuld­setja sig upp í rjáfur til þess að „eignast“ sitt eigið húsnæði. Það fólk á engu að síður að geta notið skjóls og skilnings, öryggis og áhyggju­leysis hvað heimili sitt varðar. Alma íbúða­félag leggur sitt lóð á þær vogar­skálar af miklum metnaði. Enn þá erum við einungis með vel innan við 5% markaðs­hlutdeild á leigu­markaðnum en við höfum jafnt og þétt verið að fjölga leigu­íbúðum okkar og auka þannig framboð. Það er bjargföst sannfæring mín að vönduð fasteigna­félög á leigu­markaði séu með fagmennsku sinni dýrmætur hluti af framtíðar­lausnum í húsnæðis­málum þjóðarinnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Frétt

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Ráðherrar segja þróun heimsmála og breyttar áskoranir kalla á sterkari borgarlega innviði. Samningarnir voru undirritaðir að loknum fundi þjóðaröryggisráðs.
Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis